Innlent

Tuttugu og sex utanlandsferðir á vegum forsætisráðuneytis

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Tuttugu og sex utanlandsferðir voru farnar af forsætisráðuneytinu og stofnunum þess á fyrstu níu mánuðum þessa árs og samtals fóru fjörutíu manns í ferðirnar. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn  sem Ásmundur Einar Daðason lagði fyrir á þingi. Ráðuneytið sjálft hefur fór í tuttugu og eina ferð, ein ferð var farin á vegum þjóðgarðsins á Þingvöllum og fjórar á vegum Umboðsmanns barna. Heildarkostnaður við ferðirnar nam ríflega 8,7 milljónum króna. Kostnaðurinn er vegna fargjalda og greiddra dagpeninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×