Góðar hugmyndir verðlaunaðar 21. október 2011 15:54 Sigurvegarar hugmyndasamkeppninnar
Dómnefnd sem skipuð var til að leggja mat á tillögur sem bárust í hugmyndaleit Þingvallanefndar, sem fram fór í sumar um framtíð þjóðgarðsins á Þingvöllum, greindi frá niðurstöðu sinni í dag. Alls bárust 102 tillögur frá 88 þátttakendum og veitti dómnefndin viðurkenningar fyrir 5 áhugaverðustu tillögurnar, sem jafnframt uppfylltu þau skilyrði sem nefndin setti. Afhending viðurkenninganna fór fram í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík en þar stendur nú yfir sýning á tillögunum sem bárust í hugmyndaleitinni. Höfundar tillagnanna sem dómnefndin veitti viðurkenningu fá hver um sig 200 þúsund krónur. Óskað var eftir hugmyndum almennings um hvernig bjóða megi gestum að upplifa og njóta sérstöðu Þingvalla með virðingu fyrir náttúru og sögu og í góðri sátt við komandi kynslóðir.Við afhendingu viðurkenninganna í dag sagði Ragna Árnadóttir formaður dómnefndar að við mat á hugmyndum hafi nefndin haft til hliðsjónar hvort þær veittu trúverðugt svar við spurningu hugmyndaleitarinnar, hvort þær samræmdust í meginatriðum stefnumörkun þjóðgarðsins og hvort framsetning þeirra væri greinagóð og lýsti vel inntaki hugmyndarinnar. Í máli Rögnu kom jafnframt fram að nokkur meginstef er að finna í mörgum innsendra hugmynda. Þar má meðal annars nefna vísun til víkinga og fornra íþrótta og sagnalistar og tillögur um að bjóða upp á betri veitingaaðstöðu á Þingvöllum og þá einkum í þinghelginni. Þá voru nokkrar tillögur sem fólu í sér hugmyndir um heildarstefnumótun fyrir þjóðgarðinn og aðrar um að byggja upp gönguleiðir og um merkingar á Þingvöllum og við Þingvallavatn. Dómnefnd raðaði tillögunum sem hlutu viðurkenningu ekki í sæti og því eru þær taldar upp samkvæmt skráninganúmerum. Catherine Eyjólfsdóttir (10115): Hugsað til barna í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Tillagan gerir ráð fyrir að komið verði upp leiksvæði fyrir börn. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að tillagan varpi ljósi á mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir börn í þjóðgarðinum, þannig að þau finni sér afþreyingu við hæfi og séu hvött til að kynna sér sögu forfeðra sinna og lifnaðarhætti. Tillagan undirstriki að Þingvellir eru ekki síst staður fjölskyldunnar. Sigrún Helgadóttir (10118): Þingvellir, alvöru þjóðgarður. Í tillögunni eru settar fram hugmyndir í 25 liðum sem miða að því að treysta Þingvelli sem þjóðgarð og heimsminjasvæði. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að tillagan lúti fyrst og fremst að þeirri hugsun að færa umhverfi og náttúru til fyrra horfs, hlúð verði að fornleifum og verndun náttúru og lífríkis með skipulegum hætti og hugað að mannskepnunni með bættri aðstöðu. Anna Ólafía Guðnadóttir (10139): Kringsjá. Hótel- og veitingaaðstaða á jörðinni Gjábakka. Lagt er til að reist verði hótel- og veitingaaðstaða á eyðijörðinni Gjábakka en þar er ægifagurt útsýni til allra átta. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að í tillögunni sé sett fram áhugaverð hugmynd um veitinga- og gistiaðstöðu utan þinghelgarinnar, sem veki athygli á þeim möguleika að koma upp slíkri aðstöðu fyrir ferðamenn á fleiri svæðum en þar sem Þingvallabærinn stendur og þar sem Hótel Valhöll var. Kristján Gíslason (10143): Veitingahús á Þingvöllum.Tillagan gerir ráð fyrir að hægt verði að kaupa hollan og góðan mat á fallegum veitingastað í Þingvallabænum. Dómnefnd segir meðal annars í umsögn sinni að þessi hugmynd sé afar einföld í sniðum og lúti að því að koma upp veitingaaðstöðu á þessum viðkvæma reit án mikils rasks. Hún endurspegli einnig vilja margra til að veita almenningi aðgang að Þingvallabænum. Gunnlaugur Þráinsson (10193): Gönguleiðir um Þingvöll. Tillagan felur í sér að gerðir verði göngustígar úr varanlegu efni umhverfis þjóðgarðinn. Efnt verði til alþjóðlegs maraþons á Þingvöllum þar sem hlaupið verði á milli Evrópu og Ameríku. Dómnefnd segir meðal annars að tilgangur tillögunnar sé að auðvelda aðgengi almennings að náttúrufegurð Þingvalla og að ráðast í markaðsátak til að laða að ferðamenn. Maraþon sé skemmtileg leið til að skipuleggja afþreyingu og laða ferðamenn til Þingvalla. Í dómnefnd hugmyndaleitar sátu Ragna Árnadóttir fyrrum dómsmálaráðherra formaður, Andri Snær Magnason rithöfundur, Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu, Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður og formaður íslensku heimsminjanefndarinnar. Hugmyndasmiðja Á morgun laugardaginn 22. október kl. 13.30 verður umræðunni um þjóðgarðinn á Þingvöllum haldið áfram en þá verður efnt til hugmyndasmiðju í Ráðhúsinu. Hugmyndasmiðjan er öllum opin en þar verða niðurstöður hugmyndaleitarinnar ræddar. Auk formanns dómnefndar, Rögnu Árnadóttur munu þau Lára Magnúsardóttir, sagnfræðingur, Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis og Páll Ásgeir Ásgeirsson, rithöfundur og leiðsögumaður, flytja stutt erindi um sögu og menningu á Þingvöllum, tengsl Alþingis og Þingvalla og um náttúru Þingvalla og upplifun gesta. Að loknum erindunum skipa fundarmenn sér í hópa og ræða viðfangsefnin nánar og stýrir Árni Geirsson hjá ráðgjafarfyrirtækinu Alta umræðum. Gert er ráð fyrir að málþingið standi í 2-3 klukkutíma. Sýningin á tillögunum í hugmyndaleit Þingvallanefndar stendur yfir í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík til klukkan 17 n.k. sunnudag 23. október. Jafnframt er hægt að skoða tillögurnar á vef þjóðgarðsins á Þingvöllum www.thingvellir.is
Mest lesið Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Innlent Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Innlent „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Innlent Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent Bæjarstjóri í þriðja skipti Innlent Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Innlent Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Innlent Quang Le fer ekki langt Innlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Fleiri fréttir Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Bandero segist elta hvalbátana og Pollamótið hafið fyrir norðan Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Engum verkefnum útvistað og ekki greitt fyrir ráðgjöf Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Hafna tillögum um þéttingu í Grafarvogi Bæjarstjóri í þriðja skipti Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Sjá meira
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent