Innlent

Íslendingarnir gefast ekki upp

Veik von fæddist í morgun að lokinni fjórðu lotu af sex í útsláttarleik Hollendinga og Íslendinga í bridge á HM, þegar Ísland lagði Holland að velli, 22-7. Hollendingarnir hafa yfirhöndina enda er þetta fyrsta lotan sem Ísland vinnur í átta liða úrslitunum. Staðan í leiknum er nú 161-66, Hollendingum í vil.

Björn Eysteinsson landsliðsfyrirliði segir ótímabært að gefast upp. Spilin hafi legið Hollendingum í hag í gær og þótt bilið sé enn stórt muni Íslendingar berjast til síðasta blóðdropa.

Leiknum lýkur laust fyrir klukkan fimm í dag og skýrist þá hvort bermúdaævintýrinu er lokið þetta árið. Meginmarkmiðið var þó að komast í hóp átta bestu landsliðanna í heiminum að sögn fyrirliðans og það hefur tekist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×