Innlent

Hefði heldur betur sett strik í reikninginn ef lögin væru felld

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.
„Þetta er stór áfangi fyrir okkur. Skárra væri það nú," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra í viðtali við Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem hann var inntur viðbragða vegna úrskurðar Hæstaréttar um neyðarlögin. Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að neyðarlögin væru lögleg.

„Það er alveg ljóst að við gátum ekki varið hagkerfið með öðrum leiðum en neyðarlögum af einhverju tagi, þó það megi deila um það með hvaða hætti lögin voru gerð," segir Steingrímur og bætir við að öll úrvinnsla ríkisins eftir hrunið hafi verið byggt á þessum lögum. „Það hefði því heldur betur sett strik í reikninginn hefðu þau ekki haldið," segir Steingrímur.

Steingrímur stendur í stórræðum þessa dagana en landsfundur Vinstri grænna fer fram á Akureyri nú um helgina. Steingrímur er í framboði til formanns flokksins og hefur nú óvænt borist mótframboð. Það er Þorvaldur Þorvaldsson sem bauð sig á móti honum en hann segir formanninn hafa fært flokkinn frá stefnu hans, meðal annars í evrópumálum.

„Það kemur í ljós í kosningunum á morgun hvernig ég stend að vígi innan flokksins," segir Steingrímur og það virðist engan bilbug finna á honum þrátt fyrir mótframboðið.

Steingrímur viðurkennir engu að síður að forystan hafi gert erfiðara málamiðlanir. Meðal annars í evrópumálum.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Steingrím hér en þar fer hann vítt yfir, meðal annars yfir fund á vegum AGS og Seðlabankans í Hörpu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×