Strætófarþegum fjölgað á árinu 7. október 2011 09:42
Farþegar sem ferðuðust með strætisvögnum Strætó bs. voru um 16,5% fleiri á fyrstu níu mánuðum þessa árs samanborið við sama tímabil á síðasta ári, samkvæmt mælingu fyrirtækisins. Að því er fram kemur í tilkynningu má að öllu óbreyttu gera ráð fyrir að farþegafjöldinn fari yfir níu milljónir á þessu ári. Fjöldinn á árinu 2010 var um átta milljónir en mælingar Strætó á fjölda farþega byggja á farmiðasölu. „Það sem af er þessu ári var mestur fjöldi farþega í marsmánuði,“ segir ennfremur. „Þá voru strætisvagnafarþegar tæplega ein milljón. Fjöldinn í september var um 850 þúsund, í ágúst um 857 þúsund en fæstir nýttu sér strætisvagna í júlí á árinu, eða um 517 þúsund. Þeir voru þó töluvert fleiri þá en í júlímánuði í fyrra er um 408 þúsund ferðuðust með strætó. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs höfðu um 6,7 milljónir manns ferðast með strætisvögnum Strætó bs. Á sama tímabili 2010 var fjöldinn nærri 5,8 milljónir. Fjölgunin milli ára er því tæplega ein milljón strætisvagnafarþegar.“ „Ástæða er til að fagna þeirri miklu fjölgun strætisvagnafarþega sem orðið hefur á þessu ári,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó. „Fólk nýtir betur en áður þá þjónustu sem Strætó bs. býður upp á, auk þess sem þeim hefur fjölgað sem treysta á strætisvagnakerfið. Vonandi heldur sú þróun áfram, því aukin notkun styrkir almenningssamgöngur. Aukinn farþegafjöldi gerir hins vegar að verkum að álagið á annatímum er gríðarlegt. Í þessu er því mikil áskorun fyrir Strætó bs., sem starfsmenn fyrirtækisins gera sitt besta til að mæta.“
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Sæti Artúrs logar Erlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Erlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Fleiri fréttir Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Sjá meira