Biðla til þjóðarinnar að mótmæla friðsamlega 24. september 2011 12:04 Frá mótmælum á Austurvelli mynd úr safni
Formaður landssamband lögreglumanna biðlar til þjóðarinnar að ætli fólk að mótmæla við setningu Alþingis laugardaginn fyrsta október, geri það það friðsamlega. "Það erum við sem stöndum innan við línurnar og þurfum að verja það sem þar er," segir formaðurinn. Lögreglumenn eru afar ósáttir við niðurstöðu gerðardóms í kjaramálum þeirra, en niðurstaðan var kynnt lögreglumönnum í gær. Í pistli sem Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, ritar og birtir á heimasíðu sambandsins kemur fram að lögreglumönnum finnst ríkisvaldið sýna lítilsvirðingu og að nú geti lögreglumenn einfaldlega engu treyst sem kemur frá stjórnvöldum þessa lands. Í pistlinum segir orðrétt: Það verður seint sagt um lögreglumenn að þeir séu óviljugir til verka þegar kemur að því að tryggja starfsfrið og þinghelgi Alþingis Íslendinga. Svo má hinsvegar mann þreyta að hann bogni. Alþingi verður sett laugardaginn fyrsta október og biðlar Snorri til þjóðarinnar, að ætli fólk að mótmæla við setninguna geri það það friðsamlega. Í pistli Snorra á vef Landssambandsins segir ennfremur að Lögreglumenn muni nota næstu daga til þess að fara yfir þá stöðu sem upp er komin, og í kjölfarið á því endurmeta stöðu sína gagnvart ríkisvaldinu sem farið hefur fram með offorsi, yfirgangi og valdboði gegn stéttinni. Þá hafa lögreglumenn á Vestfjörðum einnig sent frá sér ályktun þar sem segir að dómurinn sé niðurlæging við starfsstéttina. Ljóst sé að þessi niðurstaða muni strax valda neikvæðri þróun í löggæslu og óttast félagið stórfelldan flótta lögreglumanna úr stéttinni. Þá krefst félagið þess að ríkisvaldið grípi til tafarlausra aðgerða til að leliðrétta kjör lögreglumanna.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira