Ráðist á heimasíðu Bubba: Ættu mjög bágt ef ég vissi hverjir þeir væru 25. september 2011 13:14 „Nei, þeir ættu mjög bágt ef ég vissi það. Það er ekkert flókið,“ segir Bubbi um þá sem gerðu árás á heimasíðu hans. mynd/Brjánn „
Þetta er mér algjörlega óskiljanlegt, ég skil ekki hver sér tilganginn í að gera svona," segir Bubbi Morthens tónlistarmaður en óprúttnir aðilar gerðu árás á heimasíðu hans, bubbi.is, í nótt. Síðan liggur niðri en inni á henni er mikið af upplýsingum um feril hans. Bubbi segir að viðgerðarmenn vinni nú að því að laga síðuna og ef allt fer að óskum gæti hún komið aftur upp eftir helgi. „Þessi síða er einstök hér á Íslandi. Það er engin síða sem hefur að geyma jafn mikið magn af efni og er að finna á bubbi.is," segir hann. Hann segist ekki skilja hvað vakir yfir mönnum sem geri árásir á heimasíðu sem þessa. „Ég fatta ekki hvað „point-ið" er hjá mönnum sem rústa heimasíðu aðdáanda sem hefur að geyma upplýsingar um feril minn," segir Bubbi en það aðdáandi hans, Bárður Örn, sem sér um heimasíðuna. „Þetta er líka dálítið áfall fyrir hann. Þessi síðar er búin að vera lengi í loftinu." Bubbi segist ekki vita hverjir það eru sem standa að baki árásinni á síðuna. „Nei, þeir ættu mjög bágt ef ég vissi það. Það er ekkert flókið," segir hann en hann grunar engan sérstakan. „Nema einhverjum sem eru verulega illa við mig, það er eflaust einhver þarna úti sem er það," segir hann. Annars er allt gott að frétta af Bubba. „Ég er bara glaður, það er gaman og gengur vel. Ég er að túra þessa dagana og verð með tónleika í sveitinni minni í kvöld, í félagsheimilinu Dreng í Kjós," segir hann að lokum.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Fleiri fréttir Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Sjá meira