Samtök lánþega ætla að kæra vörslusviptingar í skjóli nætur 27. september 2011 17:24 Guðmundur Andri Skúlason er formaður samtaka lánþega.
Samtök lánþega lýsa yfir fullkomnu skilningsleysi á tilburðum Lýsingar hf. og Vörslusviptinga vegna brottnáms bifreiða í skjóli nætur samkvæmt tilkynningu sem samtökin sendu frá sér. Þar er því haldið fram að í slíku felist bæði brot á almennum hegningalögum, friðhelgi einkalífs ásamt því fullkomna virðingaleysi sem fyrirtækið sýnir almennum borgurum þessa lands með framferði sínu. „Það að fyrirtækin kjósi að iðka lögbrot sín í skjóli nætur sýnir óumdeilanlega að gjörningurinn er framkvæmdur í vondri trú,“ segir svo í tilkynningunni. Þá lýsa Samtök lánþega yfir undrun á þátttöku lögreglunnar í aðgerðum sem þessum, „en óumdeilt er að þau atvik er Samtök lánþega vísa hér til, eru framkvæmd án heimildar þar til bærra yfirvalda en með vitneskju lögreglu,“ eins og segir í tilkynningu samtakanna. Samtökin skora á yfirvöld dómsmála og lögreglu að bregðast þegar við og tryggja að lögregla verji eigur almennings með því að stöðva þegar slíkar aðgerðir Að lokum segir í tilkynningunni: „Fulltrúar fjármálafyrirtækja og Vörslusviptinga hafa ítrekað verið varaðir við því, að komi til þess að eign lánþega verði vörslusvipt án heimildar þá verði þegar lögð fram kæra á hendur öllum þeim aðilum sem að gjörningnum standa. Lögmenn Samtaka lánþega vinna nú að kæru til lögreglu hvar hinir brotlegu verða nú kærðir fyrir brot á almennum hegningalögum. Á næstu dögum verður nánar verður greint frá því hvaða aðila er þar um að ræða og hvort krafist verður skoðunar á ábyrgð lögregluyfirvalda vegna aðgerðaleysis þeirra.“
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Fleiri fréttir Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Sjá meira