Lestarrán í Húsdýragarðinum 27. september 2011 19:26 Lestin í Húsdýragarðinum hefur verið gleðigjafi fyrir yngstu gesti garðsins. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni með beinum hætti.
Brotist var inn í geymslu Húsdýragarðsins í nótt og lest, sem ferjar að öllu jöfnu yngstu gesti garðsins, var stolið. Samkvæmt frétt RÚV um málið í kvöld varð næturvörður í garðinum var við unga drengi sem voru að sniglast inn í garðinum. Það var ekki fyrr en um klukkan tvö um nóttina sem hann sá að það var búið að spenna geymslu upp með kúbeini og lestin, sem þar var geymd, var horfin. Þá var búið að klippa gat á girðingu garðsins og svo virðist sem lestinni hafi verið ekið út um gatið. Lögreglan var kölluð til vegna þjófnaðarins. Eftir að lögreglan hafði leitað í hverfinu fannst lestin við leikskóla í grennd við húsdýragarðinn. Lestin var sem betur fer ekki mikið skemmd að sögn Þorkels Heiðarssonar, sviðstjóra hjá Húsdýragarðinum. Hann óskar eftir upplýsingum frá almenningi um lestarránið og heitir hverjum þeim, og fjölskyldu þeirra, sem getur upplýst þennan óvanalega glæp, ókeypis ferð í lestinni. Að öllu jöfnu er brotist inn í garðinn tíu sinnum á ári.
Mest lesið Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Hlýnar um helgina Veður Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Sjá meira