Fötluðum dreng neitað um gjafsókn Hugrún Halldórsdóttir skrifar 14. september 2011 20:00 Arnaldur Breki Kjartansson fæddist þremur mánuðum fyrir tímann.
Fötluðum 12 ára dreng hefur verið neitað um gjafsókn fyrir Hæstarétti, en hann krefst skaða- og miskabóta vegna mistaka heilbrigðisstarfsmanns sem áttu sér stað á meðgöngu móður hans. Arnaldur Breki Kjartansson fæddist þann 3.mars árið 1999, þremur mánuðum fyrir tímann, en hann var tekinn með keisaraskurði vegna meðgöngueitrunar móður hans. Drengurinn varði mörgum mánuðum á sjúkrahúsi vegna veikinda og við níu mánaða aldur kom í ljós að hann væri með meðfædda heilalömun. "Heilinn gefur röng skilaboð til vöðvanna og hann er alltaf krepptur. Hann á erfitt með að samhæfa hendur og labbar mjög hægt og skakkt, en hann hefur enga tilfinningu fyrir jafnvægi," segir Guðrún Eir Einarsdóttir, móðir Arnalds Breka. Foreldrar hans stefndu íslenska ríkinu fyrir hönd sonarins og kröfðust bóta upp á tæpar 44 milljónir, þar sem þau telja að örorku hans megi rekja til þess að heilbrigðisstarfsmaður lagði Guðrúnu ekki strax inn á sjúkrahús eftir að eitrunin var greind. Í maí sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur ríkið af bótakröfunni, en mat dómsins var að ekki væri hægt að rekja fötlunina beint til vanrækslu starfsmannsins. „Við vorum í miklu sjokki og trúðum ekki að við myndum tapa þessu máli. Ef ég hefði getað fengið betri umönnun á meðgöngu minni þá er ég viss um að Breki væri orðið svona fatlaður eins og hann er í dag," segir Guðrún og bætir við að enginn hafi getað sannað að mistök starfsmannsins hafi ekki orsakað fötlunina. Málinu hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar, en Innanríkisráðuneytið hefur hafnað beiðni Arnalds Breka um gjafsókn. Arnar Þór Stefánsson, lögfræðingur fjölskyldunnar, lýsir furðu sinni á þeirri ákvörðun. „Hann fær að fara fyrir Héraðsdóm og þá er auðvitað eðlilegt að hann fái að klára síðasta áfangann og fái úrlausn Hæstaréttar í málinu." Hann segir kostnaðinn við að reka mál fyrir Hæstarétti mikinn og því gæti svo farið að fjölskyldan þurfi frá málinu að hverfa. Innanríkisráðuneytið hefur tekið ákvörðun sína til endurskoðunar og mun hún skila af sér niðurstöðum í byrjun október.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Víðidal Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sjá meira