Hópuppsagnir fyrirhugaðar hjá Heilsustofnun Hveragerðis 14. september 2011 19:19 Hveragerði
Starfsfólki Heilsustofnunarinnar í Hveragerði verður sagt upp stöfum ef þjónustusamningur stofnunarinnar við ríkið verður ekki endurnýjaður. Frá þessu var greint í frétt á RÚV fyrr í dag. Stofnunin er næststærsti vinnustaður Suðurlands, en þar vinna um 12% vinnuafls Hveragerðis. Hún er rekin af Náttúrulækningafélag Íslands samkvæmt þjónustusamningi við ríkið. Samningsviðræður hafa undanfarið staðið milli ríkisins og stofnunarinnar. Framkvæmdastjóri heilsustofnunarinnar sagði á RÚV í dag að illa hefði gengið að halda sambandi við velferðarráðuneytið. Forsvarsmenn Náttúrulækningafélags Íslands telja alþingismanninn Sigmund Erni Rúnarsson hafa sett viðræðurnar í heild sinni á hliðina með ummælum sem hann lét falla í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í gær. Sigmundur reifaði þar þá skoðun sína að ekki yrði gengið lengra í niðurskurði á grunnþjónustu samfélagsins, þar á meðal heilsugæslu. Svo lét hann eftirfarandi orð falla: „Við erum að skera niður í bráðnauðsynlegri þjónustu í heilbrigðiskerfinu á sama tíma og ríkið rekur til dæmis náttúrulækningahælið í Hveragerði. Er það eðlilegt? Á ríkið ekki fyrst og fremst að standa vörð um grunnþjónustuna í heilbrigðiskerfinu og láta aðra um hitt?" Mikil óánægja ríkir í Hveragerði vegna ummælanna og menn telja að endurnýjun þjónustusamningsins muni ganga verr í kjölfar þeirra. Velferðarráðuneytið sendi aftur á móti frá sér yfirlýsingu síðdegis í dag. Þar kemur fram að framlög til stofnunarinnar verði ekki skert umfram það sem fyrirhugað er hjá öðrum heilbrigðisstofnunum. Því veki furðu að stofnunin telji nauðsynlegt að grípa til hópuppsagna. Hins vegar ráði stofnunin auðvitað sjálf hvernig hún hagi starfsmannamálum sínum. Að auki þvertekur ráðuneytið fyrir að samskipti milli þess og stofnunarinnar hafi gengið stirðlega. Hér má hlusta á viðtal við Gunnlaug K. Jónsson, forseta Náttúrulækningafélags Íslands og Aldísi Hafsteinsdóttur bæjarstjóra í Hveragerði vegna málsins.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Víðidal Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sjá meira