Grunur um fíkniefnaneyslu 11 ára barns Boði Logason skrifar 16. september 2011 11:52 Atvikið átti sér stað í Breiðholti. Mynd/ HAG.
Grunur leikur á að ellefu ára gamall piltur, sem fannst í annarlegu ástandi í vikunni, hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Barnaverndarnefnd hefur verið tilkynnt um málið. Pilturinn fannst á grasbala í Rangárseli í Breiðholti á miðvikudagskvöld. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir í samtali við fréttastofu að lögreglu hafi borist tilkynning um hálf átta leytið þess efnis að piltur væri í annarlegu ástandi á staðnum. Þegar lögreglumenn komu á staðinn var pilturinn einn og yfirgefinn. Hann var óviðræðuhæfur og var haft samband við móður piltsins sem fór á slysadeild með honum. Ómar Smári segir að lögreglumennirnir sem komu á vettvang hafi grunað að pilturinn væri undir áhrifum kannabisefna en það sé ekki vitað fyrir víst. Hann gæti alveg eins hafa verið veikur en það eigi eftir að koma betur í ljós. „Það verður skoðað, það gæti alveg eins hafa verið veikindi,“ segir Ómar. Ekki er vitað hvar pilturinn á að hafa fengið umrætt kannabisefni en ekki leikur grunur á að hann hafi fengið það frá heimili sínu. Lögreglan rannsakar nú málið í samstarfi við Barnaverndarnefnd sem hefur verið tilkynnt um málið.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira