Ný lög um Stjórnarráð Íslands samþykkt 17. september 2011 16:38 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar til laga um Stjórnarráð Íslands var samþykkt á Alþingi rétt í þessu með 28 atkvæðum gegn 14. Tveir þingmenn sátu hjá. Frumvarpið felur ekki í sér hið umdeilda ákvæði að forsætisráðherra gæti ákveðið fjölda ráðuneyta upp á sitt einsdæmi. Í staðinn kemur inn í 2. gr. frumvarpsins ákvæði sem felur í sér að fjöldi ráðuneytanna væri ákveðinn með forsetaúrskurði. Jóhanna Sigurðardóttir sagði á þingi að nú væri verið að lögfesta mestu umbætur í stjórnsýslu landsins síðustu ár og því bæri að fagna. Hún þakkaði öllum sem lagt höfðu sitt af mörkum til að ná málinu í höfn. Steingrímur, sagðist fyrst og fremst fagna því að þeir sem hefðu lagst í ómálefnalega umræðu til að drepa málið hafi ekki hlotið erindi sem erfiði. Hann sagði að málamyndun ríkisstjórnarinnar væri ekki neinum til háðungar „nema þeim einum sem reyna að slá sjálfa sig til riddara" vegna mikilmennsku hinna. Jón Bjarnason, ráðherra, kvað sér ekki fært að styðja frumvarpið í heild. Hann fagnaði þó breytingum sem gerðar voru á frumvarpinu, þá sérstaklega breytingu á 2. gr. frumvarpsins. Hún felur nú í sér að fjöldi ráðuneyta og heiti þeirra verður ákveðið með forsetaúrskurði samkvæmt tillögu forsætisráðherra. Þar með hlýtur Alþingi færi á að fjalla um tillöguna í formi þingsályktunartillögu, eins og verið hefur. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði málið í heild sinni vera dæmi um rangar áherslur ríkisstjórnarinnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði feril málsins á þingi allan hafa verið hinn undarlegasta. Hann sagði frumvarpið enn meingallað.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira