Metfjöldi barna hljóp í Latabæjarhlaupinu 20. ágúst 2011 14:10 Krakkarnir geisluðu af íþróttamennsku í miðbæ Reykjavíkur í dag.
Mikill fjöldi barna og foreldra tók þátt í Latabæjarhlaupinu, sem hófst í Hljómskálagarðinum klukkan tvö. Hlaupið er ætlað börnum 8 ára og yngri. Aldrei hafa fleiri börn tekið þátt í hlaupinu en í ár. Í gær höfðu rúmlega 3.200 börn skráð sig til þátttöku, en auk þess var boðið upp á að skrá börnin í hlaupið í Hljómskálagarðinum í dag, og nýttu margir sér þann valkost. Eins og greint var frá í dag, hafa aldrei jafn margir hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu og í ár, og um Latabæjarhlaupið gildir hið sama, en í fyrra tóku 3.000 börn þátt í hlaupinu. Skemmtidagskrá er í þann mund að hefjast á sviði sem búið er að reisa í Hljómskálagarðinum og munu þar Gunni og Felix stíga á svið auk Íþróttaálfsins, Sollu Stirðu og Glanna Glæps. Lokahnykkurinn á Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka verða tónleikar í Hljómskálagarðinum sem hefjast kl. 20 í kvöld. Dúó Magnúsar Þórs Sigmundssonar og Jóhanns Helgasonar stígur á svið ásamt hljómsveitinni Nýdönsk sem leikur sín þekktustu lög. Magnús og Jóhann hefja tónleikanna klukkan 20 og Nýdönsk klukkan 21.25. Tónleikunum lýkur klukkan hálf ellefu.
Mest lesið Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Innlent Útiloka ekki að beita hernum í Grænlandi Erlent Mikill viðbúnaður á Kringlumýrarbraut Innlent Án leyfis en titlar sig enn sem lækni Innlent Íslenskur fjárfestir í óvenjulegri skilnaðardeilu í Bretlandi Innlent Vill lækka veikindahlutfall opinberra starfsmanna Innlent Segir skynsamlegt að anda með nefinu varðandi Grænland Innlent Sami oddviti í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár Innlent Zo-On fær ekki krónu: Kveikt á rafsuðutæki þegar eldurinn kviknaði Innlent „Það er öllu stjórnað með ógn þarna“ Innlent Fleiri fréttir Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Segir skynsamlegt að anda með nefinu varðandi Grænland Sami oddviti í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár Skautasvell á Stokkseyri slær í gegn Vill lækka veikindahlutfall opinberra starfsmanna Týnda göngufólkið reyndist vera í Reykjavík Engir símar á neyðarfundi og ráðherrar bregðast við skaupinu Hildur Björnsdóttir óskoraður oddviti í Reykjavík Viðreisn býður fram á Akureyri í fyrsta sinn Án leyfis en titlar sig enn sem lækni Áfram auknar líkur á eldgosi Rafmagn komið á að nýju í Garðabæ Berjast við talsverðan sinueld við Selfoss Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Varnarsamningur við ESB settur á oddinn og þjóðaratkvæðagreiðsla brátt fyrir þingið „Lítur út fyrir að aðeins eitt framboð hafi borist“ Tilkynnir um ráðherraskipan á föstudag Guðmundur Árni vill áfram leiða Samfylkingu í Hafnarfirði Ingibjörg og Eiríkur taka embætti dómara við Landsrétt Framboðsmál að skýrast hjá Sjálfstæðisfólki „Við Guðlaugur Þór erum góðir vinir“ Segir Viðreisn harðsnúnasta sérhagsmunagæsluflokk seinni tíma Ragnhildur Alda vill halda öðru sætinu Mannleg mistök þegar starfsmenn Reykjanesbæjar tæmdu geymslur íbúa Kosningasigurinn kostaði Samfylkinguna hátt í hundrað milljónir Mikill viðbúnaður á Kringlumýrarbraut „Ég styð Hildi og ber fullt traust til hennar“ Guðlaugur fer ekki fram í Reykjavík Enn þungt haldinn í Suður-Afríku en einhver batamerki Reynslan hafi breytt sér úr ungum hægrimanni í klassískan krata Sjá meira