Innlent

Leikskólakennarar safna fyrir sveitarfélögin

Erla Hlynsdóttir skrifar
Haraldur segir leikskólakennara ekki ætla að hnika frá þeirra túlkuná  verkfallsreglum, en forsvarsmenn sveitarfélaganna túlka þær á allt annan hátt
Haraldur segir leikskólakennara ekki ætla að hnika frá þeirra túlkuná verkfallsreglum, en forsvarsmenn sveitarfélaganna túlka þær á allt annan hátt Mynd úr safni
Leikskólakennarar hafa efnt til styrktartónleika á Nasa á föstudag og mun allur ágóði af tónleikunum renna til sveitarfélaganna.

„Við viljum leggja okkar af mörkum til að sveitarfélögin geti greitt leikskólakennurum í samræmi við ábyrgð," segir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Páll Óskar Hjálmtýsson, Lára Rúnarsdóttir og Dikta.

„Það er löngu tímabært að kennsla ungra barna sé metin að verðleikum. Leikskólakennarar vinna með börnin okkar á mest mótandi æviskeiði lífs þeirra. Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki og maður á ekki að fá minni laun fyrir að kenna minna fólki," segir í tilkynningu frá leikskólakennurum vegna tónleikanna.

Funda um fyrirkomulag verkfalls

Klukkan þrjú í dag hefst fundur sem forsvarsmenn Kennarasambands Íslands óskuðu eftir með fulltrúum sveitarfélaganna vegna ágreinings um fyrirkomulag í verkfallinu, en þessa aðila greinir á um hvort deildir sem deildarstjórar í verkfalli stýra geti starfað áfram eða hvort þeim þurfi að loka. Þá vilja forsvarsmenn sveitarfélaganna meina að leikskólastarfsmenn utan Félags leikskólakennara geti gengið í störf þeirra sem í verkfalli eru, ef til þess kemur. Þetta segir lögmaður Kennarasambandsins vera verkfallsbrot.

Haraldur segir í samtali við fréttastofu að leikskólakennarar muni ekki hinka frá sinni túlkun á reglunum. „Reglurnar eru mjög skýrar og þær gilda," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×