Millistjórnendur betur launaðir en bankastjóri vegna launastefnu 20. júlí 2011 19:30
Ríkið verður að vera samkeppnishæft við einkageirann til lengri tíma þegar kemur að launum, segir Fjármálaráðherra. Millistjórnendur eru betur launaðir en bankastjóri Landsbankans vegna launastefnu ríkisins. Að minnsta kosti átta millistjórnendur í Landsbankanum eru með fjögurhundruð þúsund króna hærri laun en yfirmaður sinn, bankastjórinn sjálfur, sem ekki má vera með hærri laun en forsætisráðherra þar sem kjör hans eru úrskurðuð af kjararáði. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, er hugsi yfir þessari stöðu innan bankans. „Þetta er auðvitað umhugsunarefni," segir Steingrímur J. Sigfússon. „Þessi staða leiðir af þessum samræmdu aðgerðum til að ná niður launakostnaði hæst launuðustu starfsmanna ríkisins, sem eru hluti af ráðstöfunum sem gripið var til strax á árunum 2008 og 2009. Þá kemur þessi staða upp, en auðvitað mun vinnast úr henni með einhverjum hætti í framtíðinni. Smátt og smátt þróast þessi mál í takt við kjarasamninga og aðstæður á markaði." Bankasýsla ríkisins, sem fer með hlut hins opinbera í bankanum, hefur gagnrýnt að bankastjórinn fái ekki sambærileg laun og hinir bankastjórarnir og segir sérreglur af þessu tagi um ríkisbankann geta hafa slæm áhrif á verðmæti hans og þannig almannahagsmuni. En er fjármálaráðherra sammála gagnrýni af þessu tagi? „Til lengri tíma litið, þá er það sjálfsagt rétt að það gangi ekki að tiltekin starfsemi ríkisins sé alls ekki samkeppnisfær í launum við almennan markað. Auðvitað verður að vera hægt að tryggja ríkinu hæft starfsfólk sem er sæmilega sátt við sín kjör, og ekki bara bönkum heldur einnig ráðuneytum og stofnunum. En það mun taka tíma að vinna úr þeim aðstæðum sem hér sköpuðust." Fjármálaráðherra segir mikilvægt að menn séu meðvitaðir um það að launamálin verði að geta þróast í átt til jafnvægis milli opinbera- og einkageirans, þó ríkið ætli ekki að verða leiðandi í launamálum. Hann varar þannig við ofurlaunasamkeppni á fjármálamarkaði í ljósi reynslunnar. En verður skipt um kúrs í launastefnu hins opinbera? „Ég ætla ekkert að gefa út um það á þessu stigi mála," segir Steingrímur. „Það er alveg ljóst að við erum áfram talsmenn hófsemi í þessum launamálum, og það er ekki ætlunin að ríkið verði leiðandi á nokkrum stað í þeim efnum, heldur að halda í við þá þróun sem framundan er."
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira