Velferðarráðherra óskar eftir fundi vegna dómsniðurstöðu um Sólheima 29. júlí 2011 12:07 Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra. Mynd/Stefán Karlsson
Velferðarráðherra mun óska eftir fundi með fulltrúa ríkislögmanns á þriðjudag vegna dómsniðurstöðu Héraðsdóms í máli Sólheima gegn íslenska ríkinu. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á kröfu Sólheima í Grímsnesi, sem þjónustar fólk með þroskahömlun, um að viðurkennt yrði að ríkið hafi vanefnt skuldbindingar sínar samkvæmt þjónustusamningi með því að skerða fjárframlag til stofnunarinnar um fjögur prósent í fjárlögum ársins 2009, eða um ellefu milljónir króna. Íslenska ríkið var dæmt til að greiða Sólheimum tvær milljónir króna í málskostnað, en í dómnum er ekki kveðið á um hvort eða hversu háa upphæð ríkið þurfi að greiða stofnuninni til viðbótar. Þó er ljóst að Sólheimar hafa orðið af ellefu milljónum á ári vegna niðurskurðarins, eða sem nemur þrjátíu og þremur milljónum. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sagðist í samtali við fréttastofu nú fyrir hádegi ætla að eiga fund með fulltrúa ríkislögmanns á þriðjudag, þar sem niðurstaða dómsins verði rædd og næstu skref ákveðin.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira