Sérfræðingur um ökufant: "Lífið er dýrmætt“ 18. júlí 2011 19:14
Bifhjólamaður var mældur á 237 kílómetra hraða á Garðsvegi á Suðurnesjum um klukkan hálf níu í gærkvöld. Þetta er einhver mesti hraði sem mælst hefur á ökutæki hérlendis til þessa. Sérfræðingur á Umferðarstofu segir ofsaaksturinn vonbrigði. Ökumaðurinn mældist fyrst á minni hraða þegar hann mætti lögreglubíl sem kom úr gagnstæðri átt. Þá jók hann hraðann og var kominn upp í 237 kílómetra hraða en þá var hann enn að auka hraðann. Ökumaðurinn hvarf lögreglumönnunum sjónum á svipstundu. Hann fannst ekki en lögreglan er nú að skoða hvort hraðamyndavél á Garðsveginum hafi náð myndum af viðkomandi. Málið minni á upptöku úr myndavél, sem bifhjólamaður spennti framan á sig, en þar sást hraðamælirinn fara hátt upp í 280 kílómetra hraða. Upptakan var á sömu slóðum og hraðakskturinn í gærkvöld. Tiltekinn maður lá þá undir grun, en sönnunargögn reyndust ekki nægilega haldgóð til að sakfella hann. Sigurður Helgason, sérfræðingur hjá Umferðarstofu, segir málið alvarlegt. „Ætli það sé ekki tvennt. Það er annars vegar vonbrigði og hins vegar áhyggjur af því að það er stöðugt verið að reyna að koma skilaboðum til fólks um það hvað hraðinn getur verið skelfilega hættulegur og hefur kostað mörg mannslíf. Ég tala nú ekki um á bifhjóli. Sá sem er á bifhjóli er mun verr varinn en sá sem er á bíl." Hann segir ekki þurfa nema eitthvað smátt á veginum til að valda alvarlegu slysi. „Það má ekkert út af bregða." Sigurður biður því bifhjólamenn aðeins að hafa eitt hugfast. „Lífið er dýrmætt."
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira