Útskrifuð af sjúkrahúsi og á leið í skýrslutöku Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. júlí 2011 11:29 "Þú átt betra skilið - hvíl í friði“ stóð í kortinu sem hugulsamður vegfarandi lagði við hótel Frón.
Litháísk kona á tuttugasta og öðru aldursári sem grunuð er um að hafa deytt barn sitt eftir fæðingu á hótel Fróni verður útskrifuð af sjúkrahúsi nú í hádeginu og verður í skýrslutökum hjá lögreglu í dag. Konan, sem talin er hafa fætt barn sitt á Hótel Fróni á laugardag, þar sem hún vann, var á sunnudag úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald. Skýrslutaka yfir konuninni mun hefjast eftir hádegi, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en ekki var hægt að taka skýrslu af konunni fyrr en nú þar sem hún dvaldist á sjúkrahúsi. Og má reikna með að konan verði í skýrslutöku í allan dag. Skýrslutökum yfir flestum öðrum sem varpað gætu ljósi á málsatvik er lokið. Þar má nefna vini konunnar, fyrrverandi sambýlismann hennar, sem einnig er Lithái, starfsfólk hótelsins og önnur vitni. Eins og komið hefur fram í fréttum virðist enginn sem tengist konunni hafa haft vitneskju um þungun hennar. Friðrik Smári sagði við fréttastofu nú í morgun að bráðabirgðaniðurstöður krufningar á barninu, sem fannst í ruslageymslu við Hótel Frón síðdegis á laugardag, lægju nú fyrir en ekki væri mögulegt að greina frá þeim að svo stöddu vegna rannsóknarhagsmuna. Framkvæmd verður geðheilbrigðisrannsókn á konunni. Það er misjafnt hverju sinni hversu langan tíma slík rannsókn tekur en það er dómkvaddur geðlæknir sem framkvæmir hana og þarf hann að hitta konuna nokkrum sinnum áður en hann skilar skriflegu mati. Eins og komið hefur fram er konan m.a grunuð um að hafa gerst brotleg við 212. gr. almennra hegningarlaga en þar segir að ef móðir deyði barn sitt í fæðingu eða undir eins og það er fætt, og ætla megi að hún hafi gert það vegna neyðar, ótta um hneisu eða sökum veiklaðs hugarástands, þá varði það alltaf fangelsi allt að sex árum.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Fleiri fréttir Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Sjá meira