Landsvirkjun verður ígildi olíuiðnaðar Noregs 28. júní 2011 18:57
Arð- og skattgreiðslur Landsvirkjunar verða svo háar á næstu tíu til fimmtán árum, samkvæmt nýrri spá, að forstjórinn líkir því við norska olíuiðnaðinn. Áætlað er að tólf þúsund ný störf geti skapast á næstu 5-6 árum vegna nýrra raforkusamninga og fjárfestinga fyrirtækisins. Þessi framtíðarsýn kemur fram í skýrslu sem fyrirtækið GAMMA gerði fyrir Landsvirkjun um efnahagsleg áhrif af rekstri fyrirtækisins til ársins 2035. Niðurstaðan er í stuttu máli sú að í virkjunum Landsvirkjunar felst einhver mesta auðlegð Íslendinga. Menn gefa sér þó að hækkandi orkuverð í heiminum skili sér til Íslands. Ásgeir Jónsson, efnahagsráðgjafi hjá Gamma, einn af höfundum skýrslunar, segir að orkuverð sé að hækka gríðarlega erlendis, sérstaklega á grænni orku, og það hljóti að smitast hingað til lands. Þá séum við með mjög hagkvæmar virkjanir. Þær forsendur eru líka gefnar að Landsvirkjun fái áfram að virkja með tilheyrandi iðnaðaruppbyggingu, þó í sátt við verndunarsjónarmið, og hvatt til þess að efnahagslægðin verði nýtt. Ásgeir segir að um þetta gildi, þegar horft sé á hagssveifluna; því fyrr því betra. Því fyrr sem takist að takist að skapa umsvif og koma kerfinu aftur af stað - því betra. Skýrsluhöfundar spá því að fjárfestingar og orkusamningar Landsvirkjunar geti skapað tólf þúsund ný störf í landinu á næstu fimm til sex árum. Þeim reiknast síðan til að skattgreiðslur og arðgreiðslur Landsvirkjunar verði á næstu tíu til fimmtán árum fjórtán prósent af tekjum ríkissjóðs. Þetta eina fyrirtæki geti þannig staðið undir öllum kostnaði við löggæslu, dómsstóla, fangelsi, menningu, íþróttir, trúmál, framhaldsskóla og háskóla. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að ef þetta gangi eftir geti þetta haft ámóta áhrif á lífskjör á Íslandi og olíuiðnaðurinn í Noregi.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Fleiri fréttir „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sjá meira