Þreyttur á að börnum sé beitt í kjarabaráttu 19. maí 2011 18:56
Velferðarráðherra segist vera þreyttur á því að stjórnmálamenn noti börn til að berjast fyrir hagsmunum og kjarabaráttu einstakra starfsstétta. Heit umræða skapaðist um tannlæknaþjónustu fyrir börn efnaminni foreldra á Alþingi í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði Guðbjart Hannesson, velferðarráðherra, um tannvernd barna í óundirbúnum fyrirspurnatíma ráðherra á Alþingi í morgun. Þorgerður Katrín kvaðst ekki vera sannfærð um að bjóða börnum efnaminni foreldra ókeypis tannlæknaþjónustu í Háskóla Íslands væri rétta leiðin til að tryggja tannheilsu barna. Sú leið hentaði foreldrum á landsbyggðinni afar illa. Frekar ætti að greiða sjálfstætt starfandi tannlæknum úr sjúkratryggingum fyrir þessa þjónustu. „Er ráðherra sáttur við þetta verklag? Fyrir utan þá hættu sem bíður upp á einelti í skólum að taka barn úr skóla til dæmis á Ísafirði eða Húsavík og senda það suður af því það hefur ekki efni á því að leita til tannlæknis á heimasvæði," sagði Þorgerður Katrín. Guðbjartur Hannesson gaf hins vegar lítið fyrir þessi rök Þorgerðar Katrínar. „Ég er orðinn þreyttur á þegar að menn noti börn endalaust til að berjast fyrir hagsmunum og kjarabaráttu einstakra starfsstétta. Ég var skólastjóri í 26 ár og það þarf ekkert að vera að draga það fram að þetta sé eineltisspursmál að senda börn einhvers staðar í tannlæknaþjónustu utan heimabyggðar. Það er bara verið að búa til storm í vatnsglasi. Það þori ég að segja sem uppeldismenntaður skólastjóri sem veit hvað er verið að tala um." Guðbjartur sagðist hins vegar frekar vilja færa þjónustuna út á land.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Sjá meira