Breytingar á stjórnarsamstarfi útilokaðar 11. apríl 2011 12:09 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Nær útilokað er talið að breytingar verða á skipun stjórnarsamstarfsins. Þá hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skilning á þeirri stöðu sem upp er komin og unnið er að því að sannfæra lánshæfisfyrirtækin um að lækka ekki lánshæfið. Ríkisstjórnin hefur þriggja þingmanna meirihluta eftir að tveir þingmenn sögðu sig úr þingflokknum fyrir skemmstu, þau Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason, en þess má geta að þau sögðu bæði nei á laugardaginn. Þá hafa tveir ráðherrar ekki neitað því að hafa sagt nei, þeir Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason í Vinstri grænum. Vangaveltur eru uppi um hvort niðurstaðan hafi veikt ríkisstjórnarsamstarfið. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ekki á dagskránni að taka nýjan þingflokk að samstarfinu, eins og t.d Hreyfinguna. Ríkisstjórnin er staðráðin í því að halda stöðunni óbreyttri og glíma við það ferli sem er framundan. Mikill slagkraftur er nú lagður í að sannfæra Norðurlandaþjóðirnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, sem lánuðu íslenska ríkinu mikla fjármuni í kreppunni, til þess að sýna þeirri stöðu sem upp er komin skilning. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru fulltrúar Seðlabankans í miklu sambandi við bandarísku lánshæfisfyrirtækin Moody's og Standard og Poor's í síðustu viku til að fá þau til að lækka ekki lánshæfi Íslands í spákaupmennskuflokk ef niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni yrði nei. Fyrirtækið Fitch Ratings hefur þegar gert slíkt, en talið er að bandarísku fyrirtækin séu skilningsríkari. Lánshæfisfyrirtækin hafa mikið að segja, þótt ýmsum finnist það skrýtið, því fjármögnun t.d Búðarhálsvirkjunar hjá Landsvirkjun verður mikið auðveldari ef bandarísku fyrirtækin tvö lækka ekki lánshæfið. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, situr nú á ráðherrafundi í stjórnarráðshúsinu. Már segir að unnið sé að því að sannfæra bandarísku fyrirtækin um að lækka ekki lánshæfiseinkunn ríkisins. „Við höfum verið í stöðugu sambandi við þá. Allan tímann, við náttúrulega reynum að veita þeim sem bestar upplýsingar á hverjum tíma. Við höfum ekki átt neina formlega fundi en það getur verið meira að frétta af þessu síðar í dag eða á morgun." Eruð þið vongóðir um að ykkur takist að það sé hægt að færa þá í allan skilning um að það séu kannski ekki forsendur til að lækka okkur? „Ég skal tjá mig um það þegar ég hef betri upplýsingar," sagði seðlabankastjóri. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Sjá meira