Ríkisstjórnin hyggst höggva á kjarahnútinn með nýjum tillögum Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. mars 2011 13:15 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í stjórnarráðshúsinu í morgun.
Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram tillögur til að höggva á hnút kjaraviðræðna aðila vinnumarkaðarins á morgun. Forsætisráðherra segir að í tillögunum séu áform um opinberar framkvæmdir til að skapa störf. Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands funduðu með ríkisstjórninni í stjórnarráðshúsinu í morgun. Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands funduðu með ríkisstjórninni í stjórnarráðshúsinu í morgun. Náðuð þið saman um einhver mál á fundinum í morgun með forystumönnum aðila vinnumarkaðarins? „Við létum þá vita í upphafi fundar að okkar tillögur, gagnvart því sem snýr að ríkisvaldinu, til að loka þessum kjarasamningum yrðu tilbúnar á morgun. Við erum að leggja lokahönd á þær," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Ríkisstjórnin mun hitta aðila vinnumarkaðarins klukkan eitt á morgun þar sem tillögur hennar verða kynntar. „Auðvitað er það svo að það er atvinnulífið sjálft sem mæðir á að keyra upp atvinnulífið, en við erum með ýmislegt sem snýr að opinberum framkvæmdum og hvernig við sjáum umhverfið fyrir atvinnulífið og hvernig við viljum tryggja að það sé hægt að keyra atvinnulífið áfram," sagði Jóhanna. Hún sagði að of mikið hefði komið fram hjá aðilum vinnumarkaðarins um að ríkisvaldið stæði gerð kjarasamninga fyrir þrifum. „Það hefur alls ekki verið. Við höfum unnið mjög stíft í þessu máli og nú er komin niðurstaða sem við kynnum á morgun." Samtök atvinnulífsins hafa nefnt Helguvík og vegaframkvæmdir til að skapa störf. Fyrrverandi viðskiptaráðherra nefndi um helgina aðkomu Landsvirkjunar að orkuöflun fyrir Helguvík. Hvað finnst þér um það? „Ég ætla ekki að nefna einstaka þætti hér. Við höfum rætt öll þessi mál sem þú nefnir. Vegaframkvæmdir, Helguvík og fleira. En þetta mun allt skýrast á morgun," sagði Jóhanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, sagði að samtökin vildu bíða með yfirlýsingar þangað til ríkisstjórnin hefði lagt sínar tillögur fram. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, tók í sama streng. Kynnti ríkisstjórnin einhver verkefni sem þið getið sætt ykkur við? „Það var verið að ræða alla þessa hluti. Framkvæmdirnar þar á meðal. Á morgun fáum við að sjá eitthvað sem er áþreifanlegt og þá getum við farið að ræða á þeim forsendum," sagði Vilhjálmur Egilsson. SA hafa gert kröfu um að ríkisstjórnin leggi einhvers konar tryggingu um framtíð fiskveiðistjórnunarkerfisins. En eru SA tilbúin í einhvers konar málamiðlun? „Við verðum að sjá til hvað kemur í pakkanum. Við vonumst til þess að þeir sjái að sér og komi með alvöru tillögur í því sambandi," sagði Vilmundur Jósefsson. Þið hélduð því fram í fyrradag að of margt stæði út af svo hægt væri að fara í síðustu lotu kjaraviðræðna. Getur ríkisstjórnin lagt eitthvað fram á sólarhring sem getur breytt þessari stöðu? „Það hefur verið unnin heilmikil heimavinna greinilega og við skulum bara sjá hvað kemur í þessum pakka áður en við förum að gefa einhverjar yfirlýsingar um hvað er í honum," sagði Vilhjálmur Egilsson. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Fleiri fréttir Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Sjá meira