Ómar vill ekki gefa upp hvort hann taki sæti í stjórnlagaráði 26. mars 2011 14:14 Ómar Ragnarsson vill ekki gefa það upp hvort hann ætli að taka sæti í stjórnlagaráði. „
Það var mjög gott fyrir okkur öll að fara yfir málin,“ segir Ómar Ragnarsson, en hann sat í morgun óformlegan fund stjórnlagaráðs. Stjórnlagaþingskosningarnar voru ógiltar af Hæstarétti og samþykkti Alþingi á fimmtudaginn tillögu um skipun stjórnlagaráðs. Þeir sem kosnir voru eiga því að taka sæti í stjórnlagaráðinu samkvæmt tillögu Alþingis. Inga Lind Karlsdóttir, er eini kjörni fulltrúinn, sem hefur gefið það út að hún ætli ekki að taka sæti í ráðinu. Átján af þeim tuttugu og fimm kjörnu fulltrúum mættu á fundinn í morgun sem stóð yfir í einn og hálfan tíma. Ómar segir að fundurinn hafi verið trúnaðarfundur og vill ekki gefa upp hvort hann ætli að taka sæti í ráðinu. „Það kemur bara í ljós, ég mun ekki gefa neitt út um það fyrr en ég er búinn að senda svar við bréfinu sem ég fékk,“ segir Ómar en allir fulltrúarnir fengu bréf þar sem þeir áttu að svara því hvort þeir hygðust taka sæti í ráðinu. Þeir hafa frest fram á þriðjudagskvöld til að svara því. Hann segir að hver og einn muni svara fyrir sig hvort þeir hyggist taka sæti í ráðinu en það hafi verið gott að hitta fulltrúana í morgun. „Við erum búin að hittast svo oft og jafnvel þó að enginn tæki sæti í ráðinu erum við orðin vinahópur,“ segir Ómar.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira