Konan vissi ekki um fíkniefnin 26. mars 2011 18:34
Tuttugu og tveggja ára gömul kona sem handtekin var í Leifsstöð á miðvikudag í tengslum við innflutning á um 36 þúsund E-töflum, segist ekkert hafa vitað um efnin. Þau voru falin í fölskum botni ferðatösku en þetta mun vera mesta magn E-taflna sem reynt hefur verið að smygla hingað til lands. Konan var að koma með flugi frá Las Palmas á Kanaríeyjum þar sem hún hafði dvalið í viku ásamt tuttugu og þriggja ára gömlum manni sem einnig var handtekin við komuna til landsins. Í fölskum botni ferðatösku sem maðurinn var með fundust töflurnar 36 þúsund ásamt rúmlega 4 þúsund skömmtum af ofskynjunarlyfinu LSD. Í kjölfarið fór lögregla fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir fólkinu sem dómari féllst á í tilviki mannsins, en konan var einungis úrskurðuð í viku varðhald. Það virðist benda til þess að hlutur konunnar sé talinn minni, en eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur hún alfarið neitað að hafa vitað nokkuð um efnin. Þau eru ekki par en þekktust og fóru saman í ferðina en ekki er talið algengt að fíkniefnum sé smyglað hingað til lands frá Kanaríeyjum. Þau hafa verið yfirheyrð reglulega frá handtöku og hafa yfirheyrslur gengið ágætlega. Konan hefur ekki komið við sögu lögreglu af neinu viti áður, en maðurinn hefur tengst afbrotum meðal annars fíkniefnamálum. Lögregla telur allar líkur á að fólkið sé ekki eigendur efnanna, þau séu einungis burðardýr, og reynir hún nú að komast að því hver sé hinn raunverulegi eigandi. Rannsókn er tiltölulega stutt á veg komin en gæsluvarðhald yfir konunni rennur út í næstu viku.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira