Skorið niður hjá Vinnuskólanum 11. mars 2011 15:32 Skólinn þarf að forgangsraða upp á nýtt fyrir sumarið og felur það meðal annars í sér að svokölluð Græn heimaþjónusta fellur niður. Mynd úr safni / GVA
Nokkrar breytingar verða gerðar hjá Vinnuskóla Reykjavíkur vegna hagræðingar. Búist er við að rúmlega tvö þúsund ungmenni skrái sig í Vinnuskólann í sumar en skráning hefst snemma í aprílmánuði. Skólinn þarf að forgangsraða upp á nýtt fyrir sumarið og felur það meðal annars í sér að svokölluð Græn heimaþjónusta fellur niður. Græn heimaþjónusta fólst í því að eldri borgarar og öryrkjar gátu sótt um þá þjónustu hjá Reykjavíkurborg að láta nemendur Vinnuskólans hreinsa garða sína. „Við þurfum á öllum okkar nemendum að halda til að sinna grænu svæðunum í borginni," segir Magnús Arnar Sveinbjörnsson skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur. Vinnuskólinn getur ekki boðið nemendum úr 8. bekk grunnskóla vinnu að þessu sinni eins og fram kom við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar á liðnu ári. Síðastliðið sumar stóð nemendum í áttunda bekk til boða hálfsdags vinna í þrjár vikur. Þá verður stytting á vinnutíma nemenda í 9. og 10. bekk í sumar og munu þeir starfa í þrjár vikur á sex vikna tímabili í stað fjögurra vikna. 9. bekkur vinnur hálfan daginn og 10. bekkur allan daginn. Vinnuskóli Reykjavíkur er Grænfánaskóli og fá nemendur áfram fræðslu í umhverfismálum líkt og undanfarin sumur. Áttatíu eru í atvinnutengdu námi í vetur á vegum Vinnuskólans, flestur úr 10. bekk grunnskólans. Markmið atvinnutengda námsins er að mæta þörfum nemenda sem þurfa að hvíla sig á skólastarfinu. „Að öllu jöfnu er þetta flottir krakkar sem eiga skilið að fá tækifæri til þess að sanna sig á öðrum vettvangi en í skóla og þess vegna býðst þeim að sækja vinnu nokkra tíma á viku á skólatíma," segir Helga Bryndís Kristjánsdóttir verkefnisstjóri.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira