Erlent

Dregur úr geislun á ný og starfsmenn snúa aftur

Starfsmenn í Fukushima kjarnorkuverinu sem hafa reynt að kæla kjarnakljúfa þess síðustu daga hafa snúið aftur í verið eftir að hafa þurft að yfirgefa það í nótt þegar eldur varð þar laus og geislavirknin jókst til muna. Stjórnvöld segja nú að dregið hafi úr geisluninni á ný þannig að hún sé nú undir hættumörkum á svæðinu í kringum verið.

Á meðan starfsmennirnir þurftu að vera í burtu reyndu menn að kæla kjarnakljúfinn með því að hella vatni úr þyrlu á verið.

Akihito Japanskeisari kom fram í sjónvarpi og þakkaði björgunarmönnum vel unnin störf og lýsti miklum áhyggjum af stöðu mála í kjarnorkuverinu. Ávörp Japanskeisara til almennings eru afar fátíð. Um 140 þúsund manns sem búa á svæðinu hefur verið sagt að halda sig innandyra til þess að forðast geislun og allir íbúar í 20 kílómetra radíus frá Fukushima verinu hafa verið fluttir á brott.


Tengdar fréttir

Óttast að 10 þúsund hafi farist

Óttast er að tala látinna á hamfarasvæðunum í Japan geti farið yfir 10 þúsund en nú þegar verið staðfest að tæplega 700 séu látnir og rúmlega 1500 slasaðir. Yfir 10 þúsund manns er saknað í bænum Kesennuma í Miyagí-héraði en ekkert hefur spurst til fólksins frá því að skjálftinn og flóðbylgjan reið þar yfir á föstudag. Yfirvöld óttast að fólkið hafi farist í hamförunum en Miyagí-hérað varð hvað verst úti.

Japan: Slökktu elda með vatni heimilislausra

Jarðskjálfti, sem mældist 6 á Richter reið yfir Japan seinni partinn í dag. Enginn fljóðbylgja fylgdi skjálftanum eins og margir óttuðust. Hundruð þúsunda manna búa nú í neyðarskýlum og skorts er farið að gæta á ýmsum nauðsynjum.

Hamfarir skekja Japan

Óttast að á annað þúsund manns hafi farist í einum öflugasta jarðskjálfta sögunnar og flóðbylgjunni sem reið yfir Japan í gær. Hættuástand í kjarnorkuveri. Tuga þúsunda saknað. Íslendingar í landinu óhultir.

Háhýsin sveifluðust sem væru úr gúmmíi

Íslendingur í miðbæ Tókýó var í um tvær og hálfa klukkustund að ganga heim til sín eftir risaskjálftann í gær. Fólki var brugðið. Skemmdir eru mismiklar eftir hverfum. Heyra mátti skilti berja hús utan þegar eftirskjálftarnir gengu yfir.

Íslendingur í Japan: Aldrei verið eins hrædd

„Ég held að ég hafi aldrei á ævi minni orðið eins hrædd og akkúrat þar sem ég var undir skrifborðinu mínu og vissi ekkert um hvernig fjölskyldan hefði það," segir Inga Lilý Gunnarsdóttir, sem býr ásamt manni sínum og tveimur dætrum í Tókýó.

Algert hrun í kauphöllinni í Tókýó

Algert hrun varð í kauphöllinni í Tókýó í nótt vegna ástandsins í Japan. Nikkei vísitalan féll um rúmlega 14% eftir að hafa fallið um rúm 6% í gær.

Geislavirknin minnkað, segja stjórnvöld

Yfirvöld í Japan segja að geislavirkni í kjarnorkuverinu í Fukushima hafi minnkað eftir sprenginguna í morgun. Hlífðarhjúpur sem er utan um kjarnakljúfinn er óskemmdur.

Ótrúlegar loftmyndir frá Japan

Ótrúlegar myndir berast frá Japan eftir að jarðskjálfti upp á 8,9 stig reið þar yfir í gærmorgun. Talið er að yfir 1300 manns séu látnir og fjölmargra er saknað. Eignatjónið á svæðinu er gríðarlegt og hafa heilu bæirnir þurrkast út.

Ástandið alvarlegt á meðan kælibúnaður er í ólagi

Eðlisfræðingur hjá Geislavörnum Ríkisins segir ástandið í kjarnorkuverinu í Japan vera mjög alvarlegt á meðan ekki hefur verið náð tökum á kælingarbúnaði versins. Almennt er þó talin lítil hætta á því að kjarnakljúfurinn springi.

Heimsmarkaðsverð á olíu snarlækkar

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarlækkað undanfarna daga vegna ástandsins í Japan. Tunnan af Brentolíunni lækkaði um 4,5% í gærdag og er komin undir 108 dollara. Bandaríska léttolían lækkaði um tæp 4% og er komin niður í tæpa 97 dollara á tunnuna.

Erlendar björgunarsveitir streyma til Japans

Óttast er að tala látinna á hamfarasvæðunum í Japan geti farið yfir 10 þúsund en um 9500 manns er saknað í bæ sem varð illa úti í skjálftanum á föstudag. Erlendar björgunarsveitir streyma nú til landsins. Sveitir frá Þýskalandi, Sviss, Ungverjalandi og Taívan lentu í Tókýó í morgun með leitarhunda og annan búnað til leitar í rústum.

Páfinn bað fyrir fórnarlömbum

Benedikt páfi sextándi bað fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans og fljóðbylgjunnar í Japan í sunnudagsblessun sinni í gær. Hann lýsti yfir ánægju sinni með reisn og hugrekki heimamanna í viðbrögðum þeirra við óförunum. Benedikt hvatti einnig hjálparstarfsmenn, sem eru að störfum í Japan, til dáða og sagði að Guð væri með þeim. Talið er að yfir tíu þúsund manns hafi farist í Japan síðan jarðskjálfti af stærðinni 8,9 á Richter reið yfir landið í síðustu viku. -fb

Fréttaskýring: Land þrýstist upp en ekki til hliðar

Risajarðskjálftinn sem varð í gær undan ströndum Japans er allt annars eðlis en skjálftar sem þekkjast hér á landi. Orkan sem leystist úr læðingi í stærsta skjálftanum er um 900 sinnum meiri en þekkist í stærstu skjálftum hér.

Geislamengun lak úr kjarnorkuverinu

Sjötugri konu var bjargað úr rústum heimilis hennar í hafnarborginni Otsuchi í Japan í gær, fjórum dögum eftir að flóðbylgja svipti húsinu af grunni síðastliðinn föstudag.

Sendiherra Japans: Þetta er martröð

Starfandi sendiherra Japan á Íslandi segir ástandið í Japan martröð líkast. Hann er þakklátur fyrir þann stuðning og samhug sem hann finnur fyrir hér á landi. Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið söfnun fyrir fórnarlömb náttúrhamfaranna.

Japanska kjarnorkuógnin leikur markaði grátt

Óttinn við umfangsmikið kjarnorkuslys í Japan hefur leitt til þess að markaðir í Evrópu hafa allir byrjað daginn með rauðum tölum. Þetta er framhald þróunar á markaðinum í Tókýó en þar hrundi Nikkei vísitalan um rúm 14% í nótt.

70 þúsund börn heimilislaus

Að minnsta kosti 70 þúsund börn í Japan hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna hamfaranna þar í landi. Samtökin Barnaheill – Save the Children vekja athygli á þessu.

Minni hætta vegna geislavirkni en talið var

Niðurstöður mælinga á geislavirkni við Fukushima kjarnorkuverið í Japan benda ekki til að um víðtæka alvarlega geislamengun hafi verið að ræða, eða verði að ræða, og svæði þar sem heilsufarslegrar áhættu gætir sé mjög takmarkað. Þetta kemur fram í frétt á vef Geislavarna ríkisins.

Allir Íslendingar í Japan óhultir

Sendiráð Íslands í Japan hefur tekist að ná sambandi við alla þá Íslendinga sem vitað erum í Japan og eru þeir allir óhultir.

Óttast öfluga eftirskjálfta

Jarðfræðingar óttast að öflugir eftirskjálftar muni ríða yfir Japan á næstu dögum í kjölfar jarðskjálftans sem skók landið á föstudagsmorgun. Talið er að skjálftarnir geti náð allt upp í 7 á Richter en upphaflegi skjálftinn var af stærðinni 9 á Richter.

Hvetur Íslendinga að fylgjast vel með fréttum

Utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í Tókíó fylgjast náið með þróun mála í Japan og hafa samráð við önnur norræn stjórnvöld vegna ástandsins þar.

Íslendingum ráðið frá ferðalögum til Japan

Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðalögum til Japan að svo stöddu. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir ennfremur að Íslendingum í Japan sé ráðlagt að forðast ferðalög til svæða í næsta nágrenni við Fukushima kjarnorkuverið.

Talið nærri öruggt að tíu þúsund hafi farist

Tala látinna fer hækkandi í Japan eftir flóðbylgjuna sem skall á norðausturströndinni á föstudag. Nú er staðfest að rúmlega 1800 séu látnir og tvöþúsund er formlega saknað. Lögregluyfirvöld segja hinsvegar nærri öruggt að rúmlega tíu þúsund manns hafi farist í hamförunum.

Geislavarnir ríkisins: Ástandið alvarlegt í Fukushima

Ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima, er enn alvarlegt, það hefur ekki tekist að koma á fullri kælingu og láta vatn þekja eldsneytisstangirnar. Þetta kemur fram í mati Geislavarna ríkisins.

Söfnun hafin á Íslandi fyrir fórnarlömb hamfara í Japan

Rauði krossinn í Japan vinnur nú á sólarhringsvöktum við að veita aðstoð fyrir fórnarlömb hamfaranna miklu sem skóku landið síðastliðin föstudag. Í tilkynningu frá Rauða krossinum hér á landi segir að opnað hafi verið fyrir söfnunarsíma í númerinu 904 1500 og bætast þá 1500 krónur við næsta símreikning við hvert símtal. Framlögin renna til hjálparstarfs Rauða krossins í Japan.

Efasemdir um kjarnorku fá byr undir báða vængi á ný

Efasemdir um hvort skynsamlegt sé að nota kjarnorku hafa fengið byr undir báða vængi í kjölfar jarðskjálftanna í Japan, þar sem kjarnorkuverið í Fukushima laskaðist illa og hætta á alvarlegri mengun hefur ekki verið útilokuð.

Náttúruhamfarir í Japan: Nítján orðið fyrir geislun

Lýst var yfir neyðarástandi í öðru kjarnorkuveri í Japan í dag en staðfest er að 19 manns hafi orðið fyrir geislun og óttast er að sú tala fari hækkandi. Erlendar björgunarsveitir streyma til landsins en eyðileggingin vegna skjálftans er sífellt að koma betur í ljós.

Önnur sprenging í Fukushima kjarnorkuverinu

Önnur sprenging varð í Fukushima kjarnorkuverinu í Japan í morgun. Talsmaður stjórnvalda segir að sjálfur kjarnakljúfurinn sé óskemmdur en að ástæða sé til að hafa miklar áhyggjur af ástandinu.

Kjarnorkuslys í uppsiglingu: Þetta er það sem getur gerst

Í Japan eru 55 kjarnorkuver á 17 mismunandi stöðum í landinu. Margir hafa áhyggjur af kjarnorkuverinu í Fukushima. Þar hafa tvær sprengingar orðið, nú síðast í morgun, og óttast er að stórslys sé þar í uppsiglingu.

Tveir fundust á lífi í rústunum

Tveimur var bjargað úr rústum í Japan í morgun, fjórum dögum eftir jarðskjálftann sem reið þar yfir á föstudag og flóðbylgjuna sem kom í kjölfarið. Sjötug kona fannst á lífi í bænum Otsuchi í Iwate héraði sem fór illa út úr skjálftanum. Konan hafði ofkælst en er ekki í lífshættu. Þá var manni bjargað í bænum Ishimaki í Miyagi héraði en þar færði flóðbylgjan allt á kaf. Um 2000 lík fundust í héraðinu í gær.

Fjórða áfallið í Japan: Eldgos í suðvesturhluta landsins

Eldgos varð í fjallinu Shinmoedake í Japan í gær og truflar flugsamgöngur. Fjallið er í suðvesturhluta Japans, á Kyushu eyjunni, sem er talsvert frá hamfarasvæðunum í Japan, þar sem flóðbylgjur hafa skilið eftir sig ótrúlega slóð eyðileggingar með þeim afleiðingum að 15 þúsund manns er saknað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×