Innlent

Söfnun hafin á Íslandi fyrir fórnarlömb hamfara í Japan

Rauði krossinn í Japan vinnur nú á sólarhringsvöktum við að veita aðstoð fyrir fórnarlömb hamfaranna miklu sem skóku landið síðastliðin föstudag. Í tilkynningu frá Rauða krossinum hér á landi segir að opnað hafi verið fyrir söfnunarsíma í númerinu 904 1500 og bætast þá 1500 krónur við næsta símreikning við hvert símtal. Framlögin renna til hjálparstarfs Rauða krossins í Japan.

„Japanski Rauði krossinn hefur áratuga reynslu af því að bregðast við hamförum sem þessum, jarðskjálftum og flóðbylgjum, jafnt innanlands sem utan," segir í tilkynningu. „Rauði krossinn hefur þjálfað tugþúsundir starfsmanna og sjálfboðaliða á liðnum árum sem hafa nú verið virkjaðir til hjálparstarfa. Sextíu og tvær neyðarsveitir japanska Rauða krossins sem skipaðar eru rúmlega 400 heilbrigðisstarfsmönnum hafa veitt aðstoð á hamfarasvæðunum frá því jarðskjálftinn reið yfir."

Rauði krossinn gegnir einnig lykilhlutverki við að dreifa hjálpargögnum, veita skyndihjálp og sálrænan stuðning. „Hjálpargögn verða send frá birgðastöð Alþjóða Rauða krossins í Kuala Lumpur til Japans um leið og ljóst er hver þörfin verður á næstu dögum. Hjálpargögnin eru fullbúin á flugvellinum í Kuala Lumpur. Frekari þörf verður svo metin jafnóðum eftir því sem afleiðingar hamfaranna skýrast. Japanski Rauði krossinn hefur ekki sent út formlega neyðarbeiðni, en þiggur fjárframlög frá systurfélögum sínum í Rauðakrosshreyfingunni að svo stöddu."

Auk söfnunarsímans er einnig hægt að styrkja neyðaraðstoð Rauða krossins með því að greiða inn á bankareikning 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649.

Rauði krossinn hefur opnað sérstaka vefsíðu familylinks.icrc.org/eng/familylinks-japan til að aðstoða aðstandendur við að koma á tengslum sem rofnað hafa við ástvini á hamfarasvæðunum. Vefsíðan er á ensku, japönsku, kínversku, kóresku og portúgölsku. Hægt er að senda fyrirspurnir um fólk í Japan auk þess sem þeir sem þar eru staddir geta látið ættingja og vini vita af sér með Rauða kross skilaboðum á síðunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×