Erlent

Japan: Slökktu elda með vatni heimilislausra

Andri Ólafsson skrifar
Jarðskjálfti, sem mældist 6 á Richter reið yfir Japan seinni partinn í dag. Enginn fljóðbylgja fylgdi skjálftanum eins og margir óttuðust. Hundruð þúsunda manna búa nú í neyðarskýlum og skorts er farið að gæta á ýmsum nauðsynjum.

Skjálftinn átti upptök sín í við borgina Shizuoka einum 100 kílómetrum suðvestur af Tókýó klukkan hálfellefu að staðartíma eða um hálf tvö að íslenskum tíma. Þetta er sá öflugasti af fjölmörgum eftirskjálftum sem hafa fundist síðan föstudaginn.

Uppbyggingin sem bíður almennings í Japan eftir stóra skjálftann er mikil.

Það er erfitt að setja sig í spor fólks, til að mynda í borginni Iwake. Fyrst var það jarðskjálftinn, svo fljóðbylgjan og nú býr það við ótta við geislun frá kjarnorkuverinu í Fukushima, sem er rétt fyrir utan borgina. Sprengingar og eldsvoðar hafa gert það að verkum að geislun er nú yfir hættumörkum þar í grennd.

„Tilfinningar mínar...Í alvöru, mitt góða, venjulega líf er allt í einu komið úr himnaríki til helvítis," sagði íbúi í Iwake.

Matvöruverslanir víða um land eru orðnar tómar, rafmagnsleysi og eldsneytisskortur er alvarlegt vandamál.

500 þúsund manns misstu heimili sín í hamförunum og um 100 þúsund manns gista í neyðarskýlum og björgunarmiðstöðvum.

Mikið álag er á viðbragðaaðilum enda eru verkefnin fjölbreytt, til að mynda tók meira en sex tíma að slökkva eld sem geisaði í borginni Kesennuma i gærkvöldi. Við slökkvistörf var notað vatn, sem átti að fara til heimilislausra, og vatnsskortur á svæðinu er nú orðið vandamál.

Á meðan er enn unnið að leita að fólki í húsarústum, og þótt ótrúlegt sé, með árangri. Tvær manneskjur fundust á lífi í morgun; kona á áttræðisaldri og maður á þrítugsaldri. Þau voru föst í meira en 90 tíma og sluppu með minniháttar áverka.

Ólíklegt verður að teljast að fleiri slíkar fréttir berist því tíminn er á þrotum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×