Mótmæla forvirkum rannsóknarheimildum 6. mars 2011 14:48 Ögmundur Jónasson.
Stjórn Ungra vinstri grænna mótmælir harðlega hugmyndum dómsmálaráðherra sem fela í sér stórauknar rannsóknarheimildir lögreglunnar. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórninni sem send var á fjölmiðla. Þar segir að með því að heimila njósnir um einstaklinga án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um saknæmt athæfi sé ríkisvaldið komið út á næfurþunnan ís. Út frá grundvallar mannréttinda - og lýðræðissjónarmiðum verður að hafna öllum slíkum hugmyndum að mati UVG. Svo segir: „Ung vinstri græn hafa lengi verið gagnrýnin á störf dómsmálaráðuneytisins, ekki hvað síst í stjórnartíð Björns Bjarnasonar. Má þar nefna ömurlega stefnu í málefnum hælisleitenda og annarra útlendinga sem hingað hafa viljað koma, vaxandi áhersla á hermennsku og vopnaburð í starfsemi lögreglunnar á kostnað hefðbundinnar löggæslu og ýmis konar aðför að almennum mannréttindum, ekki hvað síst með njósnum og hertu eftirliti. Það eru mikil vonbrigði að enn hafi ekki orðið vart við gagngerar stefnubreytingar á sviði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, þrátt fyrir að nú hafi verið vinstristjórn í landinu í rúm tvö ár. Ung vinstri græn minna Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra, á orð sín þegar forveri hans í embætti hugðist koma slíkum heimildum á og skora jafnframt á hann að endurskoða hug sinn nú. Ung vinstri græn eru sannfærð um að vel sé hægt að efla lögreglulið landsins og starf þess án þess að gripið verði til jafn alvarlegra aðgerða og þess að heimila forvirkar rannsóknir á einstaklingum." Þess má geta að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, er í Vinstri grænum.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Systir Haraldar er látin Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Sjá meira