Innlent

Þungt hljóð í leikskólastjórum

Frá Meðmælagöngunni
Frá Meðmælagöngunni Mynd: Valgarður
Talsmaður leikskólastjóra á höfuðborgarsvæðinu segir þungt hljóð hafa verið í fólki á fundi sem haldinn var á menntasviði í morgun. Hópur leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra ætla í meðmælagöngu í hádeginu þar sem mælt er með því að Reykjavíkurborg endurskoði sameiningar- og niðurskurðartillögur.

Hópurinn gengurfrá Gamla miðbæjarskólanum við Fríkirkjuveg, í beina leið að ráðhúsi Reykjavíkur og bera spjöld með einkunnarorðum hvers leikskóla. Ætlunin er síðan að leggja spjöldin niður að fótum borgarstjóra með táknrænum hætti. Einnig verður borgarstjóra, Jóni Gnarr, afhent áskorun þar sem hann er hvattur til að endurskoða niðurskurðartillögurnar.

Elín Erna Steinarsdóttir er talsmaður hópsins.

Hún segir að fólki finnist að sé vegið og erfitt sé að sjá þann faglega og fjárhagslega ávinning sem ná eigi fram með niðurskurðinum.

Leikskólastjórar funduðu niðri á menntasviði í morgun þar sem farið var yfir stöðu mála og tóku fjölmargir til máls. Elín segir hljóðið eðlilega hafa verið þungt í fólki og vonast til þess að sem flestir sýni málstaðnum samstöðu.

Fjallað verður um meðmælagönguna í Kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×