Innlent

Sameinast undir nafninu UN Women

Frá hátíðarhöldunum í dag
Frá hátíðarhöldunum í dag Mynd/Vilhelm
Fjöldi manns kom saman við Hljómalindarreitinn í dag til fagna sameiningu UNIFEM og þremur systurstofnunum innan Sameinuðu þjóðanna. Nýja stofnunin hefur hlotið nafnið UN Women og tók formlega til starfa á alþjóðavísu 24. febrúar síðastliðinn við mikinn stjörnufans í New York.

Í tilkynningu segir að um sögulegan áfanga kvenréttindabaráttunnar sé að ræða. Við hátíðarhöldin í dag var samstarf UN Women við Kitty Von-Sometime og WEIRD GIRLS PROJECT kynnt. Þá ávarpaði fjallkonan gesti.  Lúðrasveit og fylking fólks, þar á meðal Evrópumeistarar í fimleikum, Gerplustelpurnar, gengur frá Lækjartorgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×