Innbrot á pizzastað: Kannski búinn að horfa á of marga lögguþætti Boði Logason skrifar 20. júlí 2011 10:00 Ellert A. Ingimundarson leikari á og rekur pizzastaðinn Eldofninn í Grímsbæ. Á hurðinni sést hvar þjófarnir fóru inn og búið er að láta spýtu þar fyrir. Mynd/Samtsett-Vísir.is „
Við erum búin að vera þarna í tvö ár og maður er búinn að vera tiltölulega öruggur þarna þann tíma - svo það er svolítið skrítið að lenda í þessu," segir leikarinn Ellert A. Ingimundarson sem rekur pizzastaðinn Eldofninn í Grímsbæ. Rúða var brotin á staðnum í nótt og þar farið inn og stolið skúffunni úr sjóðsvélinni. Ellert segir að sem betur fer hafi bara verið skiptimynt í skúffunni og þjófarnir hafi ekki komist í burtu með háa fjárhæð. „Það er aðallega tjón á hurðinni og rúðan er brotin - síðan er skúffunni bara kippt undan tölvunni," segir Ellert en þjófavarnakerfi er á veitingastaðnum og komust þjófarnir undan áður en öryggisverðir komust á vettvang. „Þetta er í alfaraleið svo maður átti kannski ekki beint von á þessu, Bústaðavegurinn blasir þarna við og svo er öryggisgæsla í 10-11, sem er á neðri hæðinni, allan sólarhringinn." „En þeir hafa meitt sig þegar þeir brutu rúðuna því það er blóð á hurðinni eftir þá. Ég vildi helst að lögreglumennirnir tækju eyrnapinna á blóðið en þá sögðu þeir mér að það tæki marga mánuði að fá niðurstöður úr því og við þyrftum að bera allan kostnað," segir Ellert. „Ég er kannski búinn að horfa á of marga lögguþætti, eflaust taka þeir alltaf blóðið í lögguþáttunum því kúnninn þarf að bera kostnaðinn," segir hann glettinn. Ellert biður þá sem kunna að vita hver eða hverjir hafi verið þarna á ferð að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira