Gerir það gott í Hollywood 25. janúar 2011 21:30 Mynd Andreu verður frumsýnd á næstu dögum.
Nánast önnur hver manneskja í Hollywood er leikari svo lífsbaráttan snýst um að vinna sig áfram og þá gildir dugnaður, ákveðni og vinnusemi," segir Andrea Ösp, sem hefur búið í Los Angeles í þrjú ár. Þar verður frumsýnd mynd í vikulokin sem hún leikur aðalhlutverk í og nefnist Tell My Heart How. Myndin er eftir Pamelu Wells sem er þekkt fyrir seríuna The Heartbreakers. Hún var sýnd í Cannes í maí á síðasta ári og áform eru um að gera sjónvarpsþætti eftir henni. Þar á Andrea Ösp hlutverk sitt víst. Andrea Ösp lauk þriggja ára námsefni í leiklist á tveimur árum við American Academy and Dramatic Arts og hlaut gráðuna Associate of Arts ásamt verðlaunum sem besta leikkonan og besti nemandinn. Henni var boðið þriðja árið við skólann, sem einungis 24 nemendur komast inn í, og var þar lögð áhersla á leikhússýningar. "Meðal leikverka sem ég hef verið í eftir útskrift er Hope sem stýrt var af Broadway-leikstjóranum Joel Bishoff sem er alger snillingur," segir Andrea Ösp sem einnig á nokkrar bíómyndir að baki. Meðal þeirra A Lady When Pressed og Broken Art sem verða sýndar á ýmsum kvikmyndahátíðum í ár og Broken Art er á lista yfir myndir sem valið er úr til tilnefningar til verðlauna fyrir bestu kvenleikstjórn. Tónlistarmyndbönd hafa einnig verið meðal verkefna hennar, þar á meðal eitt sem MTV-verðlaunahafinn Nathan Cox stjórnaði. Los Angeles er Andreu Ösp að skapi, ekki síst sökum fjölbreytninnar. "Hér er hægt að liggja á ströndinni og fara á snjóbretti sama daginn," segir hún glaðlega. "Þótt ég og vinkonur mínar tvær sem ég leigi með, vinnum myrkranna á milli reynum við líka að heimsækja ólík hverfi, borgir og strendur og fara í gönguferðir og útilegur í fjöllunum. Ég hef búið á mörgum stöðum utan Íslands en Los Angeles er fyrsti staðurinn sem ég hef fest rætur í. Mig langar að vera hér áfram þó að Ísland sé alltaf "heima". gun@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira