Innlent

Noregur treystir áfram á EES, sama hvað Ísland gerir

Kristján Már Unnarsson skrifar
Innganga Íslands í Evrópusambandið mun ekki breyta þeirri afstöðu Noregs að halda fast í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, segir Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs. Hann hóf opinbera heimsókn til Íslands á Akureyri í gær.

Norski utanríkisráðherrann hóf daginn á fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra en úr Stjórnarráðinu hélt Jonas Gahr Støre í Alþingishúsið til fundar við utanríkismálanefnd. Málefni Norðurslóða og aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið voru helstu umræðuefnin en Jonas býst ekki við að umsókn Íslands ýti undir það að Noregur sæki um aðild á næstu árum og segir Norðmenn ætla að treysta áfram á EES-saminginn.

„Ég tel að niðurstaðan hvað varðar Ísland breyti því ekki, en sjáum til," segir ráðherrann, og bætir við: „Það er ljóst að Norðmenn fylgjast grannt með niðurstöðu Íslendinga og hverju þeir ná fram í samningunum."

Sem stendur er það EES-samningurinn sem gildir.

„Það sem er fast í hendi þar til Ísland hefur náð niðurstöðu er að við erum saman í EES-samsatarfinu. Noregur telur mikilvægt að halda sig við EES sem góða undirstöðu, hvort sem Ísland hættir í því eða verður áfram í því," segir hann.

Daginn áður en Jonas hélt til Íslands hitti hann ungmenni á sjúkrahúsi sem lifðu af hryðjuverkaárásina í Útey.

„Það var tilfinningaþrungið því ég hef fylgst með ungmennunum frá því atburðurinn hræðilegi átti sér stað. Ég var á Útey deginum áður en árásin var gerð og ég þekkti mörg þessarra ungmenna. Sum þeirra liggja enn á sjúkrahúsum í endurhæfingu og eru sum alvarlega sköðuð," segir Støre.

„Það er mikilvægt að fylgjast með þeim og styðja þau, hitta þau og fjölskyldur þeirra og gefa sér tíma í það því þau munu eiga lengi í þessu. Það gengur mjög vel hjá mörgum þeirra en mörg þeirra munu eiga erfitt á næstu vikum og mánuðum og við verðum að fylgjast náið með þeim."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×