Innlent

Kvikmyndaskólinn með tilboð frá yfirvöldum

Böðvar Bjarki Pétursson er stjórnarformaður Kvikmyndaskóla Íslands.
Böðvar Bjarki Pétursson er stjórnarformaður Kvikmyndaskóla Íslands. Mynd/ Anton.
Stjórn Kvikmyndaskóla Íslands hefur í rúma viku haft tilboð frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um styrktarsamning til skoðunar. Böðvar Bjarki Pétursson, stjórnarformaður skólans, segir það skýrast um hádegi á morgun hvort tilboðinu verði tekið. Hann vill ekki gefa upp hvað stendur út af í samningaviðræðunum en segist þó vera bjartsýnn á að samningar náist. Fyrir liggur að tilboð ráðuneytisins hljóðar upp á styrk til skemmri tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×