Skóladagvistun hækkar mest í Kópavogi 31. janúar 2011 15:43 Mynd úr safni
Gjaldtaka fyrir skóladagvist í yngri bekkjum grunnskólanna og verð á skólamáltíðum hækkaði víða um áramótin. Mest hækkaði gjald fyrir skóladagvist í Kópavogi, þar sem þriggja tíma dagleg vistun ásamt síðdegishressingu hækkaði um 35% milli ára og í Reykjavík hækkaði gjaldið um 22%. Mest hækkaði skólamáltíð milli ára hjá Kópavogi um 25% og í Árborg um 20%. Mikill verðmunur er á gjaldtöku fyrir skóladagvist og skólamáltíða milli sveitarfélaganna. Lægsta mánaðargjaldið fyrir skólagavist og hressingu er á Fljótdalshéraði 12.100 krónur á mánuði en hæsta gjaldið er í Garðabæ 22.106 krónur. Verðmunurinn er 10.006 krónur á mánuði eða 83%. Ódýrasta skólamáltíðin er í Skagafirði á 231 krónur en sú dýrasta í Garðabæ á 428 krónur. Verðmunurinn er 197 krónur eða 85%. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri samantekt verðlagseftirlits ASÍ á gjaldtöku í grunnskólum í fjölmennustu sveitarfélögunum landsins.Mánaðargjald fyrir skóladagvist með hressingu Níu sveitarfélög af þeim fimmtán sem skoðuð eru hækka hjá sér gjaldskránna fyrir skóladagvist á milli ára. Lægsta mánaðargjaldið fyrir skóladagvist og hressingu er hjá Fljótdalshéraði 12.100 krónur á mánuði en hæsta gjaldið er í Garðabæ 22.106 krónur á mánuði. Verðmunurinn er 10.006 krónur eða 83%. Mest hækkar gjald fyrir þriggja tíma dagvistun í Kópavogi en þar hækkar mánaðargjaldið úr 14.175 krónum í 19.125 krónur sem eru 4.950 krónur á mánuði eða 35%. Reykjavíkurborg hækkar næst mest mánaðargjaldið um 22% og Garðabær og Árborg koma þar á eftir með 13% hækkun. Óbreytt gjaldskrá er á milli ára hjá Akranesi, Fljótdalshérað, Seltjarnarnesi, Hafnarfirði, Fjarðarbyggð og Akureyri.Verð fyrir skólamáltíð Tíu sveitarfélög af þeim fimmtán sem skoðuð eru hafa hækkað hjá sér gjaldið fyrir hádegismatinn milli ára. Mesta hækkunin er hjá Kópavogi en þeir hafa hækkað gjaldið fyrir eina máltíð úr 280 kr. í 350 kr. eða um 25%. Sveitarfélagið Árborg hækkar um 20% og Reykjanesbær um 16%. Mjög misjafnt er hvað foreldrar þurfa að greiða fyrir hádegismatinn, en munurinn er allt að 85% á milli sveitafélaganna. Hæsta gjaldið fyrir eina máltíð er hjá Garðabæ 428 kr. en lægsta gjaldið er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, 231 kr. Óbreytt verð er á milli ára hjá Akranesi, Ísafjarðarbæ, Seltjarnarnesi, Garðabæ og Akureyri.Heildargjald með hressingu og skólamáltíð Þegar skoðað er heildargjald fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat, er Sveitafélagið Skagafjörður með lægsta verðið fyrir þjónustuna 17.871 krónur á mánuði en hæsta verðið er 31.094 krónur hjá Garðabæ sem er 13.223 krónu verðmunur á mánuði eða 74%. Einnig má sjá að heildarkostnaðurinn hækkar hjá flestum sveitafélögunum nema Akranesi, Akureyri og Seltjarnarnesi. Mesta gjaldskráhækkunin á milli ára er hjá Kópavogskaupstað, úr 20.055 krónum í 26.475 krónur sem er hækkun um 6.420 krónur á mánuði eða 32% , næst mesta hækkunin á heildargjaldinu er hjá Reykjavíkurborg en þar hækkar heildargjaldið um 18% úr 15.633 krónum á mánuði. í 18.440 krónur. Systkinaafslættir hjá sveitafélögunum Systkinaafslættir eru misjafnir eftir sveitafélögum. Afslátturinn fyrir annað barn er frá 25% upp í 75% og afslátturinn fyrir þriðja barnið er 50% upp í 100%. Öll sveitafélögin eru með stighækkandi afslátt með fjölda barna. Reykjavíkurborg er með hæsta systkinaafsláttinn, en þar er veittur 75% afsláttur með öðru barni og 100% með þriðja. Ekki er gefinn afsláttur af fæði. Mjög misjafnt er á milli sveitarfélaganna hvernig gjaldskráin er uppbyggð, til dæmis er hámarksgjald, mánaðargjald, aukagjald fyrir gæslu á starfsdögum, aukagjald fyrir að hjálpa til með heimalærdóm og skráningargjald. Einnig er hádegismatur seldur í formi mánaðargjalds, klippikorts eða sem stakar máltíðir. En til að einfalda samanburð milli sveitarfélaganna miðar verðlagseftirlitið samanburð sinn við mánaðargjald miðað við 21 dag og vistun í þrjá tíma á dag, samtals 63 tíma á mánuði. Einungis er um verðsamanburð að ræða, ekki er lagt mat á gæði þjónustunnar.
Mest lesið Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Innlent Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Innlent Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Innlent Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Innlent Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Innlent „Þetta er ekki eiturgas“ Innlent Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Innlent Fleiri fréttir Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Drúsar mótmæla við sendiráðið Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Fjórir kettir týndust í brunanum Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Einn í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar á bug Körfubolta og frjálsíþróttalöggur á Norðurlandi vestra Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Einn fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði við Tryggvagötu Tekist á um brostin loforð ríkisstjórnarinnar Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Móðan gæti orðið langvinn Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Framdi vopnað rán og leikur lausum hala í Reykjavík Sjá meira