Tveir af þremur vilja halda ESB-umsóknarferli áfram 24. janúar 2011 00:01
Könnun Nærri tveir af hverjum þremur landsmönnum vilja að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði lokið og samningur lagður í þjóðaratkvæðagreiðslu, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Rúmur þriðjungur vill að umsóknin verði dregin til baka. Heldur hefur fjölgað í hópi þeirra sem vilja ljúka viðræðum við ESB frá því Fréttablaðið kannaði síðast afstöðu fólks í september í fyrra. Nú vilja 65,4 prósent ljúka viðræðunum en 64,2 prósent voru þeirrar skoðunar í september. Um 34,6 prósent vilja draga umsóknina til baka, samanborið við 35,8 prósent í september í fyrra. Í könnuninni sem gerð var í september virtist sem talsverður viðsnúningur hafi orðið þegar niðurstöðurnar voru bornar saman við könnun sem MMR gerði fyrir vefsíðuna Andríki í júní í fyrra. Samkvæmt könnun MMR vildu þá 57,6 prósent landsmanna draga aðildarumsóknina til baka. Könnun Fréttablaðsins í september mældi mikla breytingu á afstöðu fólks. Afstaðan virðist lítið hafa breyst síðan. Aukinn stuðningur er meðal stuðningsmanna allra flokka við að ljúka aðildarviðræðunum. Aðeins meðal stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins vildu fleiri draga umsóknina til baka en ljúka viðræðunum. Um 50,9 prósent vildu stöðva viðræðurnar en 49,1 prósent ljúka viðræðunum. Stuðningur við að ljúka viðræðunum er mestur innan Samfylkingarinnar. Innan samstarfsflokksins í ríkisstjórn, Vinstri grænna, vilja nú 67,2 ljúka viðræðunum, 3,6 prósentustigum fleiri en í september.- bj
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira