Innlent

Fjármálaráðuneytið leiðréttir Sigmund Davíð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fór með rangt mál í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag um Icesave. í greininni gagnrýnir Sigmundur þá ákvörðun að samþykkju Icesave og segir margar fráleitar staðhæfingar hafa fallið um kostnaðinn við að greiða ekki Icesave.

„Sú umræða er eitthvert besta dæmið um hvernig stjórnmálaumræða fer fram með innistæðulausum frösum fremur en rökum."

Í leiðréttingu frá fjármálaráðuneytinu er vitnað í grein Sigmundar þar sem hann segir:

„Landsbankinn telur heildsölulán (innstæður sveitarfélaga, stofnana osfrv.) ekki til forgangskrafna. Glitnir flokkar þau hins vegar sem forgangskröfur. Ef Landsbankinn tapar yfirstandandi málaferlum vegna þessa bætast yfir 170 milljarðar, á Seðlabankagengi, við kröfurnar og hvað ætli það verði mikið ef krónan fellur?"

Fjármálaeftirlitið segist vilja koma því á framfæri „að hið rétta er að slitastjórn Landsbankans hefur viðurkennt forgang heildsöluinnlána að fjárhæð um 145 milljarðar króna."

„Í mati samninganefndar Íslands á kostnaði við Icesave-samninginn hefur ætíð verið miðað við að þessi innlán yrðu flokkuð sem forgangskröfur. Einnig er rangt í umræddri grein að Glitnir flokki þessar kröfur sem forgangskröfur, það hefur slitastjórn hans einmitt ekki gert (gagnstætt slitastjórn Landsbankans). Þetta er því umdeilt lögfræðilegt álitaefni.

Færi svo, að dómstólar kæmust að þeirri niðurstöðu að þessar kröfur nytu ekki forgangs líkt og almenn innlán, myndi það þýða að heimtur upp í forgangskröfur myndu aukast og þar með yrði kostnaður ríkisins vegna samningsins og að meðtöldum vöxtum enginn, sé miðað við forsendur samninganefndarinnar.

Kostnaðarmat samninganefndarinnar miðar við óhagstæðustu niðurstöðu um þetta álitaefni," segir í leiðréttingunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×