Innlent

Hópuppsagnir í febrúar: 39 sagt upp

Mynd af heimasíðu stofnunarinnar.
Mynd af heimasíðu stofnunarinnar.

Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í febrúarmánuði þar sem sagt var upp 39 manns. Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð, iðnaði og upplýsingaog útgáfustarfsemi. Í frétt á heimasíðu stofnunarinnar segir að ástæður uppsagnanna séu verkefnaskortur, endurskipulagning og rekstrarerfiðleikar. Þessar hópuppsagnir koma til framkvæmda á tímabilinu apríl til júní 2010.

Alls hafa Vinnumálastofnun borist tilkynningar um uppsagnir 99 manns á árinu 2010 í hópuppsögnum, mest í upplýsingum og útgáfu, 38% og 37% í mannvirkjagerð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×