Innlent

Stefnt að undirritun samninga um kísilver síðdegis

Kristján Már Unnarsson skrifar
Þorlákshöfn.
Þorlákshöfn. Mynd/Rósa J.

Stefnt er að því að skrifað verði undir samninga um kísilver í Þorlákshöfn síðar í dag, svo fremi að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fallist á orkusamnig á fundi sínum nú í hádeginu, en með fyrirvara um að fjármögnun takist. Bæjarstjóri Ölfuss segir þetta það jákvæðasta sem gerst hafi lengi í atvinnumálum.

Kísilverið myndi rísa á iðnaðarlóð um þrjá kílómetra vestan við byggðina í Þorlákshöfn. Þar hefur verið tekin frá 15 hektara lóð og önnur jafnstór lóð fyrir mögulega stækkun síðar meir. Vegna reglna á hlutabréfamarkaði vestanhafs hefur nafn hins erlenda fyrirtækis ekki enn verið gefið upp.

Miðað er við kísilverið taki til starfa eftir þrjú ár og þar verði í fyrstu um 170 starfsmenn. Verði ráðist í stækkun skapast allt að 150 framtíðarstörf til viðbótar. Fyrirtækið þarf um 90 megavött raforku og hyggst Orkuveitan mæta því með smíði Hverahlíðarvirkjunar á Hellisheiði. Framkvæmdir við virkjun og verksmiðju kalla á 400 störf á byggingartíma.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fundar nú í hádeginu um orkusamninginn og verði hann samþykktur er stefnt að því skrifa síðar í dag undir samninga um verkefnið, en með fyrirvara um að fjármögnun takist.

Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, segir þetta það jákvæðasta sem gerst hafi lengi í atvinnumálum, og hefur orð hinna erlendu fjárfesta fyrir því að fjármögnun sé í góðum farvegi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×