Innlent

Þjóðskrá og Fasteignaskrá Íslands sameinaðar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragna Árnadóttir ætlar að sameina Þjóðskrá og Fasteignaskrá Íslands. Mynd/ Valgarður.
Ragna Árnadóttir ætlar að sameina Þjóðskrá og Fasteignaskrá Íslands. Mynd/ Valgarður.
Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur ákveðið að sameina starfsemi Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands eigi síðar en um næstu áramót.

Ráðherra fól samráðshópi, sem skipaður var tveimur fulltrúum dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins ásamt settum ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra Þjóðskrár og forstjóra Fasteignaskrár, að skoða hagkvæmni sameiningarinnar. Það var sameiginleg tillaga hópsins að sameina starfsemi Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands í eina stofnun. Miðað er við að réttindi og kjör starfsmanna haldist óbreytt við þessa breytingu og að hin sameinaða starfsemi verði í Borgartúni 21 þar sem Fasteignaskráin er til húsa.

Ráðherra kynnti þessa ákvörðun á fundi ríkisstjórnar í morgun og á starfsmannafundum í Þjóðskrá og Fasteignaskrá síðdegis. Ráðherra hyggst setja á fót stýrihóp sem skipaður verður fulltrúum dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands til að vinna að framgangi sameiningarinnar í góðu samstarfi við starfsfólk Þjóðskrár og Fasteignaskrár. Í tilkynningu frá Rögnu segir að mikilvægt sé að raska í engu undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslu á vegum Þjóðskrár og verði lagt fyrir stýrihópinn að miða sína vinnu við það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×