Innlent

Níu af átján nýir á forvalslista VG

VG Sex konur og þrír karlar bjóða sig fram í fyrsta skipti í forvali VG. Sú elsta er fædd 1956 en sú yngsta 1991. Forvalið fer fram á laugardag.
VG Sex konur og þrír karlar bjóða sig fram í fyrsta skipti í forvali VG. Sú elsta er fædd 1956 en sú yngsta 1991. Forvalið fer fram á laugardag.

Níu nýir frambjóðendur eru á átján manna forvalslista VG fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Með nýjum frambjóðendum er átt við þá sem ekki hafa verið í framboði eða tekið sæti á lista fyrir flokkinn áður.

Þetta er nokkuð meiri endurnýjun en í nýloknum prófkjörum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, en þar voru fimm nýir á hvorum lista.

Nýir frambjóðendur VG í Reykjavík eru:

Birna Magnúsdóttir, vagnstjóri hjá Strætó. Hún býr í Unufelli og er fædd 1965.

Elín Sigurðardóttir verkefnastjóri, býr í Álftamýri og er fædd 1979.

Ingimar Oddsson, ráðgjafi og listamaður, býr á Lynghaga og er fæddur 1968.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur og doktorsnemi. Hún er búsett við Dyngjuveg og fædd 1956.

Líf Magneudóttir, vefstjóri og grunnskólakennari. Líf á heima við Bræðraborgarstíg og er fædd árið 1974.

Margrét Jóndóttir, kennari og þroskaþjálfi. Hún á heima í Spóahólum og er fædd 1957.

Snærós Sindradóttir framhaldsskólanemi, býr við Vesturvallagötu og er fædd 1991.

Vésteinn Valgarðsson stuðningsfulltrúi, býr á Grundarstíg og er fæddur 1980.

Þór Steinarsson háskólanemi, býr í Karfavogi og er fæddur 1974.

Forvalið verður haldið á laugardaginn næsta. - kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×