Sum sveitarfélögin borga ekki tíundina 2. mars 2010 03:45 frá Alþingi Samkvæmt upplýsingum frá þremur stærstu flokkunum greiða allt að sextán sveitarfélög til stjórnmálastarfsemi, en þau ættu að vera um fimmtíu. Þó ber að geta þess að í sumum sveitarfélögum bjóða flokkarnir fram undir öðru nafni, eða í samstarfi við aðra flokka.fréttablaðið/gva
Mörg sveitarfélög virðast ekki hafa brugðist við lögum um fjármál stjórnmálasamtaka, sem sett voru 1. janúar 2007. Fimmtíu sveitarfélög hafa fimm hundruð íbúa eða fleiri og eru því skyldug samkvæmt lögunum til að styrkja stjórnmálasamtök sem hafa einn kjörinn fulltrúa eða fleiri í sveitarstjórn, eða sem fengu fimm prósent atkvæða eða meira í kosningum. Í ársreikningi Sjálfstæðisflokks frá 2008 kemur fram að sextán sveitarfélög styrktu flokkinn fjárhagslega það ár. Þó er ekki tilgreint hvort það var gert samkvæmt lagaskyldu eða hvort um annars konar styrki var að ræða. Framlögin voru frá 14,4 milljónum frá Reykjavíkurborg og niður í 70.510 krónur frá Blönduósi. Á skrifstofu VG fengust þær upplýsingar að sveitarfélögin, sem hafa styrkt flokkinn samkvæmt þessum lögum, séu örfá. Skrifstofa Samfylkingar telur til átta sveitarfélög. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, staðfestir að einungis hluti sveitarfélaga hafi greitt í samræmi við lögin en bendir á að umrædd lög segja ekkert um hversu mikið eigi að greiða flokkunum, einungis að flokkarnir eigi að fá greitt í samræmi við atkvæðafjölda. Lögin séu ekki nógu skýr. „Sveitarfélögin hafa verið að velta því fyrir sér hvernig eigi að framkvæma þetta. Sum þeirra hafa talað um að greiða í lok hvers kjörtímabils og hafa því ef til vill ekki greitt enn þá. Einnig hefur verið til skoðunar að setja einhverja viðmiðunarupphæð,“ segir Halldór. Þegar lög um fjármál stjórnmálasamtaka skylduðu sveitarfélög til að greiða með stjórnmálastarfsemi var kostnaður sveitarfélaga vegna alþingis- og forsetakosninga færður yfir til ríkisins. Halldór segir það sjónarmið uppi hjá sveitarfélögum að miða við þá fjárhæð, þegar greitt skal til stjórnmálaflokka. Ágúst Geir Ágústsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti, er formaður nefndar um endurskoðun þessara laga. Hann segir ljóst að sveitarfélögin fari eftir þeim á mismunandi hátt. Nefndin er nú að vinna að tillögum að breytingum á lögunum. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent „Gríðarstór“ árás á höfuðborgina Erlent Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Innlent Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Innlent Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Innlent Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt Erlent Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Innlent Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Fleiri fréttir Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Sjá meira
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent