Skilanefndarmenn fá þrjár til fimm milljónir á mánuði 17. febrúar 2010 06:00 Lárentsínus Kristjánsson
Mánaðarlaun skilanefndarmanna og slitastjórna í Glitni, Kaupþingi og gamla Landsbankanum námu allt frá þremur til fimm milljónum króna á mann í fyrra. Líkur eru á að þau verði jafn há á þessu ári. Skilanefndir og slitastjórnir eru ekki á launaskrá gömlu bankanna heldur fá þær greiddar sem verktakar fyrir sérfræðistörf. Féð rennur ekki beint í vasa nefndarmanna heldur lögfræðistofa og endurskoðendafyrirtækja sem nefndarmenn starfa hjá. Fyrirtækin greiða þeim laun og standa skil á launatengdum gjöldum. Kostnaðurinn fellur undir innlendan sérfræðikostnað í yfirliti Glitnis og Kaupþings um rekstrarkostnað skilanefnda í fyrra en er tilgreindur hjá Landsbankanum. Þar nam hann 178 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Í skilanefndum bankanna sitja sjö lögfræðingar og endurskoðendur en í slitastjórnunum sitja níu með sama bakgrunn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er kostnaður skilanefnda miklu hærri en slitastjórna. Starfsmenn skilanefnda eru með í kringum 25 þúsund krónur á tímann, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þetta er í samræmi við meðallaun lögfræðinga hér á landi en þau þykja ekki há í alþjóðlegum samanburði. Dæmi er um að lögfræðistofur í Bretlandi rukki allt að 650 pund á tímann. Það gera um 130 þúsund íslenskar krónur. Skilanefndir bankanna þriggja þurfa að gera óformlegu kröfuhafaráði (ICC) grein fyrir öllum kostnaði. Hvorki náðist í Árna Tómasson, formann skilanefndar Glitnis, né þá Steinar Guðgeirsson, formann skilanefndar Kaupþings, og Lárentsínus Kristjánsson, formann skilanefndar Landsbankans, vegna málsins í gær.- jab Árni Tómasson
Mest lesið Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Erlent Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Innlent „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Sjá meira