Dæmi um að foreldrar selji lyf frá börnum sínum Karen Kjartansdóttir skrifar 24. janúar 2010 19:29 Matthías Halldórsson er aðstoðarlandlæknir. Mynd/ GVA.
Dæmi eru um að foreldrar hafi selt rítalín og fleiri lyf frá börnum sínum í ábataskyni. Aðstoðarlandlæknir veit til þess að söluturn í Reykjavík selji lyfseðilsskyld lyf undir borðið og undrast að lögregla láti sig þetta ekki varða. Undanfarið hefur verið greint frá því í fréttum Stöðvar 2 að misnotkun á lyfseðilskyldum lyfjum, sem einkum eru notuð af börnum, svo sem rítalín og concerta, fer vaxandi á Íslandi. Læknar sem rætt hefur verið við vegna þess segja ástæðuna sem fíklar gefa þeim einkum þá að mjög hafi dregið úr flæði amfetamíns hér á landi og gæði þess minnkað. Því reiði þeir sig fremur á lyfseðilskyld lyf. Þetta sé áhyggjuefni þar sem svo virðist sem sumir foreldrar sjái sér gróðavon í því að selja lyfin frá börnum sínum. „Það ber stundum við núna að það sé verið að reyna að nálgast þessi lyf sem börnin eiga að fá og að það séu þá fíklar sem nota þau lyf," segir Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir. Af því sé tvöfaldur skaði. í fyrsta lagi fái barnið ekki það lyf sem það þurfi og að hinu leyti sé það misnotað af fíklum. Matthías segist þekkja tiltekin dæmi um þetta og að hann viti jafnvel til þess að lyfið hafi verið selt í verslun í bænum. Matthías segist hafa tilkynnt lögreglunni um að ólögleg viðskipti með lyf séu í versluninni en lögregla hafi enn ekkert aðhafst svo hann viti til.
Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Sjá meira