Innlent

Boða til borgarafundar á Austurlandi

Fundurinn verður haldinn á Egilsstöðum.
Fundurinn verður haldinn á Egilsstöðum.

Samband sveitarfélaga á Austurlandi boðar til opins borgarafundar um málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum sunnudaginn 10. október kl. 15:00.

Í fjárlagafrumvarpi sem lagt hefur verið fram er boðaður gríðarlegur niðurskurður á fjárframlögum til HSA. Ef af þessum niðurskurði verður er ljóst að verið er að færa þjónustu í heilbrigðismálum á Austurlandi marga áratugi aftur í tímann og vega með alvarlegum hætti að búsetuskilyrðum á Austurlandi.

Stjórn SSA hefur áður samþykkt harðorð mótmæli gegn boðuðum niðurskurði og hvetur nú alla Austfirðinga til að fjölmenna á fundinn, sýna samstöðu og mótmæla þessum áformum ríkisvaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×