Innlent

Facebook-síðu lokað eftir sjálfsmorðssprengjuhótun

Skjáskot af síðunni. Lögreglan beinir rannsókn sinni að þeim sem skrifaði ummælin.
Skjáskot af síðunni. Lögreglan beinir rannsókn sinni að þeim sem skrifaði ummælin.

Facebook-síðu með yfirskriftinni „Við myndum fórna lífinu fyrir Ísland", hefur verið lokað en samtökin Sterkara Ísland kærðu sjálfsmorðshótun hópsins til lögreglunnar.

Samkvæmt framkvæmdastjóra Sterkara Íslands, Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur, var samtökunum hótað á vefsvæðinu.

Á fésbókarsíðu félagsins stóð meðal annars: „„Brátt munum við birta lista yfir „óvini nýja Íslands", lista yfir réttdræpa landráðamenn, mafíósa, evrópusinna og önnur skotmörk sem þarf að uppræta með öllum tiltækum ráðum…ÁFRAM ÍSLAND !"

Svo var bætt um betur í tilefni af fundi samtakanna Sterkara Íslands en þar voru menn hvattir til þess að mæta á fundinn og valda usla. Svo stóð:

„Jæja… hver ætlar að vera fyrstu til að fórna sér fyrir málstaðinn? Sprengjubeltið bíður…"

Samtökunum Sterkara Ísland hugnuðust ekki skilaboðin og kærðu því málið til lögreglu. Síðunni hefur nú verið lokað.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn segir málið í rannsókn.

Rannsókn málsins beinist helst að þeim sem settu inn færsluna um sprengjuhótunina. Aðspurður hvort lögreglan hafi fundið þann einstakling ítrekaði Friðrik að málið væri í rannsókn og því ekki unnt að gefa upp nákvæmari upplýsingar.

Bryndís segir samtökin óhrædd þrátt fyrir hótanir hópsins. Vinnufundurinn mun fara fram á morgun eins og fyrirhugað var.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×