Landskjörstjórn kemur saman 4. mars 2010 09:45 Ástráður Haraldsson, lögmaður, er formaður landskjörstjórnar.
Landskjörstjórn kemur saman seinnipartinn á morgun vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave á laugardaginn. Kjörstjórnin fundar aftur um miðjan dag á laugardag og aftur um kvöldið þegar talning atkvæða fer fram. Fyrir utan að veita umsögn um dagsetningu atkvæðagreiðslunnar er verkefni landskjörstjórnar samkvæmt lögum tvíþætt. Landskjörstjórn skipar einstaklinga til að gæta „tveggja ólíkra sjónarmiða við atkvæðagreiðsluna og úrlausn ágreiningsmála" eins og það er orðað í lögum. Fram kemur í tilkynningu að landskjörstjórn hefur skipað tólf einstaklinga til að gegna þessu hlutverki, einn fyrir hvora fylkingu í hverju kjördæmi. Hlutverk umboðsmannanna í kjördæmunum svarar til hlutverks umboðsmanna framboðslista vegna kosninga til Alþingis. Meginhlutverk þeirra er að fylgjast með framkvæmd talningar og ef ágreiningur verður milli yfirkjörstjórnar og umboðsmanna um gildi atkvæðaseðla geta þeir skotið honum til úrskurðar landskjörstjórnar. Að lokinni talningu atkvæða fær landskjörstjórn gerðabækur yfirkjörstjórna ásamt þeim atkvæðaseðlum sem ágreiningur hefur verið um milli yfirkjörstjórnar og umboðsmanna. Landskjörstjórn auglýsir síðan með hæfilegum fyrirvara hvar og hvenær hún kemur saman til að úrskurða um ágreiningsseðlana og lýsa úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Heimilt er að kæra ólögmæti atkvæðagreiðslunnar til landskjörstjórnar og skulu slíkar kærur sendar landskjörstjórn ekki síðar en tveimur dögum áður en landskjörstjórn kemur saman til að lýsa úrslitum atkvæðagreiðslunnar, að fram kemur í tilkynningunni. Að öðru leyti er framkvæmd atkvæðagreiðslunnar í höndum dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, yfirkjörstjórna, undirkjörstjórna, sýslumanna og sveitarstjórna í samræmi við lög.
Mest lesið Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Innlent Fleiri fréttir Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Sjá meira