Innlent

Munu stöðva allar tilraunir til að fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bjarni Benediktsson sagði að stjórnarandstaðan myndi stöðva allar tilraunir til þess að hætta við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Mynd/ GVA.
Bjarni Benediktsson sagði að stjórnarandstaðan myndi stöðva allar tilraunir til þess að hætta við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Mynd/ GVA.
Allar tillögur til þess að fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni verða felldar í þinginu, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í dag. Allar slíkar tilraunir yrðu stöðvaðar af stjórnarandstöðunni.

Bjarni spurði hvort ekki væri öruggt að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram. Hélt hann því fram að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hefðu ekki gefið nægjanlega skýr svör um þetta.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði að forsendan fyrir því að fresta málinu væri sú að pólitísk samstaða næðist um það. Hann teldi að langvænlegast væri að hafa nýtt samkomulag í hendi fyrir kosningarnar. Steingrímur sagðist telja að ef til vill væri samningastaða Íslendinga best núna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×